| veldu: | starfsnám og brautir | grafík og margmiðlun | sérfræði námsbrautir | sérfræði námskeið | bókhaldsnám | Ýmis námskeið |

| Afslættir og styrkir til atvinnulausra |
| Áfangar - einingar |
| Greiðslukjör |
| Hvað er ECDL ? |
| Námsvísir NTV (PDF) |
| Prófmiðstöð |
| QuickTjek |
| Stefna NTV |
| Sveigjanleiki í námi |
| Um NTV |
| Póstlisti | ||
Evrópska tölvuökuskírteinið vottar það að handhafi þess búi yfir þekkingu á grundvallarhugtökum í upplýsingatækni og þeirri grundvallarfærni sem þarf til þess að nota tölvu og algengustu forrit hennar. ECDL skírteinið (áður TÖK skíreini) skiptist í sjö þætti, einn skriflegan þar sem reynt er á þekkingu á grundvallarhugtökum í upplýsingatækni og svo sex verkleg próf þar sem reynt er á kunnáttu á tölvu og algeng forrit hennar.
Evrópska tölvuökuskírteinið er viðurkennt um allan heim. Kostir þess eru t.a.m. einföldun á mannaráðningum þar sem handhafar ECDL skírteinis geta vottað kunnáttu sína á tölvur.
Umsjón og framkvæmd ECDL er í höndum Stofnunar um evrópskt tölvuökuskírteini. Stofnunin ber ábyrgð á ECDL staðlinum, þróun hans og rétta framkvæmd ECDL víða um heim. Stofnunin er ekki rekin í hagnaðarskyni, en hún veitir leyfishafa í hverju landi leyfi til að nota ECDL hugmyndina. Skýrslutæknifélag Íslands er leyfishafi á Íslandi og hefur vottað NTV sem viðurkennda prófmiðstöð fyrir ECDL. Hjá NTV er þ.a.l. bæði hægt að sækja námskeið sem stuðla að því að nemendur fái ECDL skírteini, en einnig er hægt að koma og taka prófin án þess að sækja námskeið.
1. Grunnhugtök í upplýsingatækni. Hér reynir á þekkingu próftaka á uppbyggingu tölva og skilning á grunnhugtökum í upplýsingatækni eins og gagnageymslu, minni, hugbúnað, tölvunet o.þ.h.
2. Notkun tölvunnar og umsjón skráa (Windows). Hér er prófað í grunnaðgerðum tölva, stýrikerfis og umsjón skráa, skráarsafna og mappna. Próftaki þarf að sýna hæfni í að skipuleggja skrár, afrita, færa og eyða þeim ásamt notkun á leitarskipunum, einföldum verkfærum til ritvinnslu og prentstjórnunarkosti sem eru tiltækir í stýrikerfinu.
3. Ritvinnsla (Word). Próftaki þarf að kunna skil á grunnaðgerðum við gerð skjals, snið þess og frágang þannig að það sé tilbúið til dreifingar. Próftaki þarf einnig að sýna fram á færni í að leysa sumar flóknari aðgerðir eins og töflugerð, vinna með myndir og tengiprentun.
4. Töflureiknar (Excel). Hér reynir á skilning og hæfni próftaka í að byggja upp, þróa og vinna töflureikniskjal þar sem reynir á staðlaðar stærðfræðilegar og röklegar aðgerðir með einföldum formúlum og aðgerðum.
5. Gagnagrunnur (Access). Próftaki þarf að skilja grunnhugtök sem varða gagnagrunn og kunna að nota og búa til slíkan. Hér reynir t.a.m. á smíði gagnagrunns frá grunni, en einnig þarf próftaki að kunna að nota grunn sem fyrir er og sækja upplýsingar í hann.
6. Framsetning og gerð kynningarefnis (Power Point). Þarna reynir á færni próftakans við að nota kynningarverkfæri á tölvu til vinnslu á kynningum til dreifingar og sýningar. Próftaki þarf að sýna fram á færni í við grunnaðgerðir sem varða myndræna framsetningu og kunna að setja upp glærusýningu.
7. Upplýsingatækni og samskipti - tvískipt eining: Fyrri hlutinn kallast Upplýsingatækni (Internet), en hér reynir á færni til leitar á vefnum með vafra og leitarvélum. Seinni hlutinn nefnist samskipti (tölvupóstur) og þar reynir á hæfni próftaka við notkun tölvupóstforrits, senda skjöl og skrár, skipuleggja o.þ.h.
Próftakar þurfa að ná minnst 80% árangri í hverju prófi til að standast. Þetta endurspeglar mikilvægi og nauðsyn þess að kunna skil á þeirri hagnýtu þekkingu og verkkunnáttu sem verið er að prófa. Prófin eru ekki þung - það er ekki beint verið að prófa hversu klárir próftakar eru, heldur verið að ganga úr skugga um að þeir kunni skil á algengustu og mikilvægust þáttum tölvunnar og forritum hennar.
| Venjulegt verð | Nemendur NTV |
||
Hæfnisskírteini |
3.000 |
Hæfnisskírteini |
3.000 |
Grunnur |
2.900 |
Grunnur |
1.900 |
Windows |
2.900 |
Windows |
1.900 |
Word |
2.900 |
Word |
1.900 |
Excel |
2.900 |
Excel |
1.900 |
Internet/tölvupóstur |
2.900 |
Internet/tölvupóstur |
1.900 |
Access |
2.900 |
Access |
1.900 |
PowerPoint |
2.900 |
PowerPoint |
1.900 |
Samtals: |
23.300 |
16.300 |