Nýi tölvu- og viðskiptaskólinn
prenta síðu | Skráning á námskeið | Skráning í próf | Staðsetning skólans
tölvunám veldu: starfsnám og brautir grafík og margmiðlun sérfræði námsbrautir sérfræði námskeið bókhaldsnám Ýmis námskeið     viðskiptanám
Nýi tölvu- og viðskiptaskólinn
Nýi tölvu- og viðskiptaskólinn | Hlíðasmára 9 | 201 Kópavogur | Sími 544 4500 | Fax 544 4501 | ntv@ntv.is
@ forsíða > Aðrir tenglar > Greiðslukjör  

Greiðsla námskeiðsgjalda

Nemendur þurfa að hafa gengið frá greiðslu námskeiðsgjalda áður en námið hefst.
Allar bækur og önnur námskeiðsgögn eru innifalin í námskeiðsgjaldinu.
Í sumum tilfellum (þegar námskeið eru að verða fullbókuð) er farið fram á að væntanlegir nemendur greiði staðfestingargjald. Ef nemandi hættir við nám eftir að hafa greitt staðfestingargjald þá á hann ekki rétt á endurgreiðslu þess.
Fyrir starfsnám gildir sú regla að ganga þarf frá greiðslu á námskeiðsgjöldum tveimur vikum áður en námskeið hefst.
Við viljum vekja athygli á að nemandi sem hættir í skólanum eftir að nám er hafið, hefur hvorki rétt til endurgreiðslu á námskeiðsgjöldum né staðfestingargjaldi.
Ef nemandi þarf að hætta í námi vegna óviðráðanlegra orsaka (t.d. veikindi eða slys) getur hann skráð sig í sambærilegt nám innan tveggja ára, sér að kostnaðarlausu. Það þarf að gerast í samráði við skólastjóra og gildir einungis ef ekki er fullbókað á viðkomandi námskeið við upphaf náms.

Lánskjör:

Boðið er upp á bæði VISA og Euro lán. Lánstími er mismunandi eftir því um hve háa upphæð er að ræða.

Skráning á námskeið | prenta síðu

Nýi tölvu- og viðskiptaskólinn | Hlíðasmára 9 | 201 Kópavogur | Sími 544 4500 | Fax 544 4501 | ntv@ntv.is