| veldu: | starfsnám og brautir | grafík og margmiđlun | sérfrćđi námsbrautir | sérfrćđi námskeiđ | bókhaldsnám | Ýmis námskeiđ |

| Afslćttir og styrkir til atvinnulausra |
| Áfangar - einingar |
| Greiđslukjör |
| Hvađ er ECDL ? |
| Námsvísir NTV (PDF) |
| Prófmiđstöđ |
| QuickTjek |
| Stefna NTV |
| Sveigjanleiki í námi |
| Um NTV |
| Póstlisti | ||
Nýi tölvu- og viðskiptaskólinn hóf starfsemi sína í október 1996. Stofnendur voru bræðurnir Jón Vignir og Sigurður Karlssynir.
Fyrst um sinn var skólinn til húsa að Hólshrauni í Hafnarfirði og svo síðar einnig í Hlíðarsmára í Kópavogi. Um mitt ár 2003 var ákvörðun tekin um að færa starfsemi skólans undir eitt þak í Hlíðarsmáranum og samhliða því var skólinn stækkaður þar um 4 kennslustofur. Í dag rúmar skólinn því 7 kennslustofur auk aðstöðu fyrir nemendur og starfsfólk.
Í júlí 2008 varð NTV CPLS skóli.
CPLS stendur fyrir Microsoft Certified Partner for Learning Solutions.
NTV uppfyllir öll þau skilyrði sem Microsoft gerir til slíkra skóla s.s. Kennara með MCT gráður, vélbúnað, námsefni og aðstöðu.
NTV mun bjóða upp á ýmis önnur sérfræðinámskeið s.s. CCNA, CCENT o.fl.
Fyrrverandi framkvæmdarstjóri Isoft, Hermann Jónsson, var ráðinn til að sjá um skipulag og rekstur á sérfræðinámi NTV.
Nýi tölvu- og viðskiptaskólinn hefur ætíð haft það orðspor á sér að vera vinalegur og heimilislegur skóli. Nemendur hafa títt orð á því að þeim líði vel í skólanum. Þannig vitum við að flestir okkar nýnemendur koma vegna góðs umtals fyrrverandi nemenda. Við erum meðvitaðir um þennan mikilvæga þátt og gerum allt sem við getum til að viðhalda því þægilega og persónulega viðmóti sem skólinn er þekktur fyrir.
Öll aðstaða skólans er til fyrirmyndar. Öflugar tölvur, flatskjáir og öflugir skjávarpar eru í öllum stofum, gott loftræstikerfi er í öllum skólanum, þægileg og heimilisleg aðstaða fyrir nemendur - sófar, ísskápur, kaffi, te, sódavatn, kex o.s.frv.
Skrifstofan er opin alla virka daga kl 8:00 - 16:00 nema á föstudögum kl 8:00 - 12:00.
Skólastjóri: Jón Vignir Karlsson (jvk@ntv.is)
Umsjónarmaður sérfræðináms: Guðný María Ingólfsdóttir (gudny@ntv.is)
Skrifstofustjóri: Eva Birgitta Eyþórsdóttir (eva@ntv.is)
Tækni- og kennslustjóri: Sigurður Karlsson (sigkarl@ntv.is)
Kennitala skólans: 681096-2729
Reiknings nr.: 0545-26-000044