| veldu: | starfsnám og brautir | grafík og margmiðlun | sérfræði námsbrautir | sérfræði námskeið | bókhaldsnám | Ýmis námskeið |

| Afslættir og styrkir til atvinnulausra |
| Áfangar - einingar |
| Greiðslukjör |
| Hvað er ECDL ? |
| Námsvísir NTV (PDF) |
| Prófmiðstöð |
| QuickTjek |
| Stefna NTV |
| Sveigjanleiki í námi |
| Um NTV |
| Póstlisti | ||
Afar fá fyrirtæki hafa raunverulega vitneskju um hversu hæfir starfsmenn fyrirtækisins eru á tölvur. Með því að mæla hver hæfni þeirra er í raun og veru er hægt að skipuleggja kennslu sem er klæðskerasaumuð að þörfum hvers og eins og spara þannig bæði peninga og tíma.
Með QuickTjek er hægt að mæla tölvuhæfni starfsmanna á raunhæfan hátt og þar með fæst tækifæri til að hámarka fjárfestingu í tölvumenntun starfsmanna.
Þegar tölvuhæfni er mæld er það oftast gert í formi spurninga þar sem sá sem spurður er segir sjálfur til um eigin getu… t.d. “Hversu góður ertu í notkun…”
Svör við spurningum sem þessum velta oft á þáttum sem ekki er hægt að mæla, t.a.m. sjálfsmati, sjálfstrausti o.s.frv.
QuickTjek er byggt upp á spurningum og æfingum um hvernig hlutirnir eru gerðir í raun og veru, þ.e.a.s. svarandinn þarf að svara spurningum eða gera verklegar æfingar sem varða það fagsvið sem prófað er í. Þannig er QuickTjek mjög raunhæft og auðvelt að greina og bera saman þær niðurstöður sem koma í ljós.
Um er að ræða val á sjö könnunum: Almenn tölvukunnátta, Windows, Word, Excel, Access, PowerPoint og Outlook. Allar kannanirnar eru á íslensku en mögulegt er að velja á milli íslensku og ensku útgáfunnar á MS Office.
Skýrslutæknifélag Danmerkur hefur á síðastliðnum 5 árum safnað tölfræði úr 500.000 QuickTjek könnunum sem í dag skapa enn traustari undirstöður fyrir þennan hugbúnað og gildi hans í mælingum á tölvuhæfni. QuickTjek á Íslandi er samstarfsverkefni Skýrslutæknifélags Danmerkur og Nýja tölvu- og viðskiptaskólans.
Notkun QuickTjek er einföld. Það þarf að skrá inn upplýsingar um starfsfólk, nafn, deild, starfsheiti og hvaða kannanir viðkomandi á að taka. Starfsmenn fá síðan leiðbeiningar, aðgangs- og lykilorð og geta svo tekið könnunina á sína eigin tölvu þegar þeim hentar.
Þegar starfsmenn fyrirtækisins hafa lokið við að taka þær kannanir sem skilgreindar voru eru skrifaður út úr QuickTjek kerfinu ýmsar skýrslur með niðurstöðum.
Nú er kominn grunnur til að skipuleggja markviss námskeið miðað við mismunandi kunnáttustig starfsmanna.
QuickTjek kannanir eru mikið notaðar af fyrirtækjum og stofnunum í Danmörku en þar í landi eru 39 skólar og prófmiðstöðvar sem veita slíka þjónustu.
Sjá: http://dansk-it.dk/certificering/quicktjek.aspx
QuickTjek kannanir hafa þegar verið prófaðar hérlendis með góðum árangri t.d. lét Hagkaup gera 186 kannanir og skipulögðum við síðan í samvinnu við þá hnitmiðuð námskeið fyrir valda hópa.
Hafðu samband og við erum reiðubúin að veita allar nánari upplýsingar og gera þér tilboð í QuickTjek kannanir fyrir þitt fyrirtæki.