| veldu: | starfsnám og brautir | grafík og margmiðlun | sérfræði námsbrautir | sérfræði námskeið | bókhaldsnám | Ýmis námskeið |

| Afslættir og styrkir til atvinnulausra |
| Áfangar - einingar |
| Greiðslukjör |
| Hvað er ECDL ? |
| Námsvísir NTV (PDF) |
| Prófmiðstöð |
| QuickTjek |
| Stefna NTV |
| Sveigjanleiki í námi |
| Um NTV |
| Póstlisti | ||
Smelltu hér til að sjá dæmi um lokaverkefni
Lengd námskeiðs: 210 stundir
Einingar til stúdentsprófs: 8
Staðgreiðsluverð: Fyrir allt námskeiðið er 209.000.
Kjör fyrir atvinnulausa: 156.750 kr. (25% afsláttur) - geta líka sótt um 70.000 kr. styrk hjá VMST
Tvær enskar og tvær íslenskar kennslubækur eru innifaldar í verði. Ef fullbókað verður á námskeiðið þá ganga þeir fyrir sem skrá sig á allt námskeiðið.
Inntökuskilyrði: Þeir sem hafa hug á þessu námi þurfa að hafa haldgóða tölvukunnáttu og þekkja vel til Windows stýrikerfisins og notkun Internetsins. Þar sem mestur hluti námsgagna er á ensku þarf góð enskukunnátta einnig að vera fyrir hendi. Efnið er kennt frá grunni.
Annað: Flest stéttarfélög styrkja félagsmenn til náms hjá NTV. Boðið er upp á VISA eða MasterCard lán.
Námskeið hefst 13 sept. og lýkur 13. des.
Kennsludagar og tími: Kennt er á mánudaga, miðvikudaga og föstudaga kl. 13 - 17.
Undanfarin misseri hafa gagnagrunnstengdar vefsíður rutt sér mjög til rúms og hönnunartækni í vefsíðugerð hefur fleygt fram. Þar sem vefir verða sífellt stærri og gagnamagn á þeim eykst stöðugt er nauðsynlegt að síðumagn og viðhald vefsins aukist ekki úr hófi.
Með gagnagrunnstengdum vefjum er hægt að minnka alla umsýslu sem og sjálfvirknivæða viðhald og birtingar á gögnum eftir fyrirfram skilgreindum forsendum.
Þegar nemandinn hefur lokið þessu námskeiði á hann að hafa haldgóðan skilning á vefsíðugerð bæði hvað varðar hefðbundnar vefsíður og síðan gagnagrunnstengdar vefsíður. Nemendur hafi vald á meðferð myndefnis fyrir vefinn og framsetningu þess, hafi skilning á virkni hefðbundinna vefsíðna og læri til þess HTML kóðun.
Nemendur læri að hanna, viðhalda og setja upp gagnagrunna og læri grundvallaratriði SQL fyrirspurnarmálsins og læri að tengja vefsíður við gagnagrunna. Nemandinn hefur þar að auki getu og skilning til þess að nota CSS stílsnið til að stýra útliti vefsíðna.
Mikið er um verklegar æfingar og fá nemendur þannig tækifæri til þess að fara í gegnum verkferli vefsíðugerðar. Í lok námskeiðsins vinna nemendur lokaverkefni.
Námskeiðinu er skipt í þrjá hluta:
Fireworks, Photoshop, Flash
Í fyrsta hluta námskeiðsins er farið í myndvinnslu fyrir vefinn. Notuð eru forriti Adobe Fireworks, Adobe Photoshop og Adobe Flash.
Fireworks er myndvinnsluforrit sem sérstaklega er sniðið að þörfum vefsíðugerðarfólks. Fireworks gerir notendum kleift að nýta gögn úr öllum helstu myndstöðlum og gera þau hæf til birtingar á vefnum (jpg, gif & png). Forritið notast bæði við vigur- (Vector) og punktamyndir (Bitmap, Pixel) og einfalt er að flytja gögn yfir í önnur forrit og þá sér í lagi Dreamweaver.
Photoshop er stóra myndvinnsluforritið í dag. Að mörgu leiti sambærilegt við Fireworks en þó er stæra og meira í sniðum og meira miðað við þarfið ljósmyndara og prentiðnaðarins. Þó má vel nota það við gerð myndefnis til vefsíðugerðar og æskilegt að nemendur kunni skil á því samhliða Fireworks. Gæði mynda úr Photoshop eru að jafnaði meiri en tíminn sem í vinnsluna fer er á móti lengri.
Flash er notað til gerðar hreyfimynda fyrir vefinn. Grundvallaratriði forritsins eru skoðuð og gerð létt verkefni.
Dreamweaver & HTML (XHTML)
Annar hluti námskeiðsins fjallar um almenna (venjulega) vefsíðugerð. Vefsíðugerðarforritið Adobe Dreamweaver er notað og farið verður ítarlega í alla helstu þætti sem viðkoma almennri vefsíðugerð. Dreamweaver þykir bera af öðrum vefsíðugerðarforritum bæði er varðar notendaviðmót, vald yfir viðfangsefninu og skil á kóða vefsíðanna.
HTML verður skoðað í þaula og nemendur læra að kóða vefsíður með einföldum textaritil. Hlutir einsog CSS, DHTML og Javascriptir verða skoðaðir vel en Dreamweaver hefur öflugt viðmót fyrir þessa þætti.
Dreamweaver , SQL & Access
Þriðji og síðasti hlutinn er síðan Gagnagrunnstengd vefsíðugerð. Ef vefsvæði eiga að ná árangri þurfa þau að vera uppfærð reglulega. Með gagnagrunnstengdum vefsíðum er hægt að minnka alla umsýslu við stærri vefi sem og sjálfvirknivæða, og einfalda allt viðhald.
Að auki geta skoðendur vefsíðnanna skilyrt innihald vefsíðnanna eftir sínum þörfum og jafnvel verið þátttakendur í gerð innihalds þeirra ef svo ber við. Dreamweaver kemur aftur hér við sögu en forritið er útbúið öflugum en jafnframt einföldum tólum til brúkunar á þeim þáttum er þarf til að hanna, smíða og viðhalda gagnagrunnstengdu vefsvæði.
Í þessum hluta er komið inn á hönnun, viðhald og uppsetningu gagnagrunna með hjálp forritsins Accesss, kynnt verða til sögunnar grundvallaratriði í meðferð og umgengni við gagnagrunnstengd vefsvæði. Einnig verður farið í gerð SQL fyrirspurna og meðferð þeirra í takt við Dreamweaver, og kynnt til sögunnar ASP og PHP.
Í lok námskeiðsins vinna þeir nemendur sem sitja alla hluta námskeiðsins, ítarlegt lokaverkefni sem reynir á getu og færni nemenda í vefsíðugerð, og fyrir það gefin einkunn.
NTV hefur hafið samstarf við Talent Ráðningar. Ráðgjafar frá Talent Ráðningum koma og spjalla við þá nemendur sem eru í tölvu- og tækninámi í NTV. Farið er yfir hvernig er best að bera sig að við atvinnuleit, gerð ferilskrár og fl. Mikil eftirspurn er eftir tölvu- og tæknifólki í dag en Talent Ráðningar sérhæfa sig í tækni- og sérfræðistörfum. Heimasíða Talent er www.talent.is