Nýi tölvu- og viđskiptaskólinn
prenta síðu | Skráning á námskeiđ | Skráning í próf | Stađsetning skólans
tölvunám veldu: starfsnám og brautir grafík og margmiđlun sérfrćđi námsbrautir sérfrćđi námskeiđ bókhaldsnám Ýmis námskeiđ     viđskiptanám
Nýi tölvu- og viđskiptaskólinn
Nýi tölvu- og viðskiptaskólinn | Hlíðasmára 9 | 201 Kópavogur | Sími 544 4500 | Fax 544 4501 | ntv@ntv.is
@ forsíða > Sérfrćđi námsbrautir > MCTS og Network + (áđur MCP)  

MCTS og Network+

Almennar upplýsingar

Lengd námskeiðs: 108 kennslustundir
Einingar til stúdentsprófs: 4
Staðgreiðsluverð: 139.000 (Allar námsbækur eru innifaldar í verði)
Kjör fyrir atvinnulausa:
104.250 kr. (25% afsláttur) - geta líka sótt um styrk hjá VMST.
Inntökuskilyrði: Nemendur þurfa að kunna skil á notendaumhverfi Windows stýrikerfisins og geta lesið ensku, þar sem stór hluti námsefnis er á ensku. Reynsla af rekstri tölvukerfa er ekki nauðsynleg.
Annað:
Flest stéttarfélög styrkja félagsmenn til náms hjá NTV. Boðið er upp á VISA eða MasterCard lán.

Næstu námskeið:

Kvöld- og helgarnámskeið - haust 2010:

Kennt er á mánudags- og miðvikudagskvöldum 18:00 - 22:00 og á laugardögum 08:30 - 12:30. Námskeiðið byrjar 13. sept. og lýkur 23. okt.

Kvöld- og helgarnámskeið - haust 2010:

Kennt er á mánudags- og miðvikudagskvöldum 18:00 - 22:00 og á laugardögum 08:30 - 12:30. Námskeiðið byrjar 25. okt. og lýkur 4. des.

Morgunnámskeið 1 (haust 2010):

Kennt þriðjudaga og fimmtudaga kl. 8:30 til 12:30 og á föstudögum kl. 13 - 17. Námskeiðið byrjar 14. sept. og lýkur 22. okt.

Morgunnámskeið 2 (haust 2010):

Kennt þriðjudaga og fimmtudaga kl. 8:30 til 12:30 og á föstudögum kl. 13 - 17. Námskeiðið byrjar 23. nóv. og lýkur 13. jan 2011. (frí 18/12 til 3/1)

Um námskeiðið:

Markmiðið með þessu námskeiði er að nemendur öðlist færni og kunnáttu til að setja upp og hafa umsjón með tölvum sem keyra á Windows stýrikerfinu. Nemendur skulu einnig öðlast viðtækan skilning á netkerfum og geta leyst vandamál sem að þeim snúa. Auk þess er kynntur fyrir nemendum Windows 2008 Server.
Að námskeiði loknu á nemandi að geta séð um rekstur minni eða meðalstórra tölvuneta.

Meðal þess sem tekið er fyrir á námskeiðinu er:

  • Kunnátta í uppsetningu og uppfærslum í Windows 
  • Sjálfvirkar uppsetningar
  • Meðferð vélbúnaðar og rekla
  • Umsjón með notendum og hópum
  • Þekking á skráarkerfinu og kvóta
  • Aðgangsstýringar í skráarkerfinu og samnýting gagna
  • Uppsetning prentara og samnýting þeirra
  • Afritatökur og endurheimt
  • Kunnátta í stillingum Windows 7 við notkun í netkerfum
  • Skipulaggning TCP/IP netkerfa og villuleit
  • DHCP og DNS í Server 2008
  • Active Directory í Server 2008

Mikil áhersla er lögð á að nemendur læri vönduð vinnubrögð í rekstri netkerfa.
Námskeiðið er góður undirbúningur fyrir þá sem hyggja á áframhaldandi nám s.s. MCITP.
Námið byggir bæði á kennslu og verklegum æfingum þar sem nemendur spreyta sig við lausnir dæmigerðra vandamála sem upp kunna að koma. Auk þess fá nemendur aðgang að fjarnámsvef þar sem lögð eru fyrir verkefni auk þess sem bent er á ýmislegt ítarefni.

Helstu námsgreinar:

Netkerfi og rekstur stýrikerfa (24 stundir)

Farið er í helstu atriði netkerfa s.s. TCP/IP protocol - Subnet - Topology´s - Hubbar, Switchar, Router, Bridge - PeerToPeer vs/ Client Server.
Auk þess verður farið í eftirfarandi atriði: Öryggi, vírusvarnir, afritataka - Réttindi (Permissions, Policies) - Hjálpartól. (Ghost (Speglun), Zip ofl.).

MCTS Windows Configuration (72 stundir)

Kennd er uppsetning á Windows stýrikerfinu ásamt uppsetningu á prenturum og öðrum jaðartækjum. Nemendur öðlist viðtækan skilning á netkerfum og geti leyst vandamál sem að þeim snúa. Stuðst er við viðukennt Microsoft námsefni (MOC Microsoft Official Curriclium)

Windows 2008 server (12 stundir) 

Á þessum hluta námskeiðsins kynnast nemendur uppsetningum, rekstri og vandamálagreiningum á Windows 2008 Server, bæði stand-alone og sem hluti af workgroup eða domain. 
 

Samstarf við Talent Ráðningar

NTV hefur hafið samstarf við Talent Ráðningar. Ráðgjafar frá Talent Ráðningum koma og spjalla við þá nemendur sem eru í tölvu- og tækninámi í NTV. Farið er yfir hvernig er best að bera sig að við atvinnuleit, gerð ferilskrár og fl. Mikil eftirspurn er eftir tölvu- og tæknifólki í dag en Talent Ráðningar sérhæfa sig í tækni- og sérfræðistörfum.

Heimasíða Talent er www.talent.is
 

 

Skráning á námskeið | prenta síðu

Nýi tölvu- og viðskiptaskólinn | Hlíðasmára 9 | 201 Kópavogur | Sími 544 4500 | Fax 544 4501 | ntv@ntv.is