| veldu: | starfsnám og brautir | grafík og margmiđlun | sérfrćđi námsbrautir | sérfrćđi námskeiđ | bókhaldsnám | Ýmis námskeiđ |

| Afslćttir og styrkir til atvinnulausra |
| Áfangar - einingar |
| Greiđslukjör |
| Hvađ er ECDL ? |
| Námsvísir NTV (PDF) |
| Prófmiđstöđ |
| QuickTjek |
| Stefna NTV |
| Sveigjanleiki í námi |
| Um NTV |
| Póstlisti | ||
Lengd námskeiðs: 114 kennslustundir
Einingar til stúdentsprófs: 5
Staðgreiðsluverð: 99.000 kr. (Allar námsbækur eru innifaldar í verð).
Kjör fyrir atvinnulausa: 74.250 kr. (25% afsláttur) - geta einnig sótt um styrk hjá VMST.
Inntökuskilyrði: Nemendur þurfa að hafa lokið grunnskólaprófi og vera orðnir 18 ára og hafa grunnþekkingu á tölvunotkun.
Annað: Flest stéttarfélög styrkja félagsmenn til náms hjá NTV.
Boðið er upp á VISA eða MasterCard lán.
Námskeið hefst: 8. apríl
Námskeiði lýkur: 29. maí
Kennsludagar og tími: Kennt er á þriðjudags- og fimmtudagskvöldum 18:00 - 22:00 og á laugardögum 08:30 til 12:30.
Námskeið hefst: 14 sept.
Námskeiði lýkur: 28. okt..
Kennsludagar og tími: Kennt er á þriðjudags- og fimmtudagskvöldum 18:00 - 22:00 og á laugardögum 08:30 til 12:30.
Námskeið hefst: 13 sept.
Námskeiði lýkur: 27. okt.
Kennsludagar og tími: Kennt er á mánudögum, miðvikudögum og föstudögum frá 8:30 til 12:30.
Um námskeiðið:
Markmiðið með námskeiðinu er að þjálfa fólk til starfa við bókhaldsstörf. Námið er byggt upp á kennslu og verklegum æfingum.
Allar námsgreinar eru kenndar frá grunni og rétt er að gera ráð fyrir nokkurri heimavinnu. .
Kennd er undirstaða bókhalds þar sem helstu reikningar eru teknir fyrir og verkefni færð í dagbók. Kennd er afstemming með prófjöfnuði ásamt reikningsjöfnuði, og gerð efnahags- og rekstrarreiknings. Mikið er um verklegar æfingar.
Kenndur er sá hluti af verslunarreiknings sem mest er notaður í almennri skrifstofuvinnu, s.s. prósentureikningur, afsláttur og álagning, samsettur prósentureikningur, útreikningur marktölu (vísitala), útreikningur á vörureikningi og skyndiuppgjör vörureiknings, útreikningur á veltuhraða, vaxtareikningur, samsettir vextir og framlegðar- og framlagsútreikningur. Mikið af verklegum æfingum.
Kennd er uppbygging bókhaldslykla, merking fylgiskjala, notkun bókunarbeiðna, hvernig færslur eru skráðar, afstemmingar þ.m.t. hvernig stemmt er af við bankayfirlit. Farið er yfir færslur fyrir nokkra mánuði með tilheyrandi uppgjöri og útskriftum fyrir hvern mánuð. Kennt er á viðskiptahugbúnaðinn Navision Attain sem er eitt mest notaða bókhaldsforrit á markaðnum í dag.