| veldu: | starfsnám og brautir | grafík og margmiðlun | sérfræði námsbrautir | sérfræði námskeið | bókhaldsnám | Ýmis námskeið |

| Afslættir og styrkir til atvinnulausra |
| Áfangar - einingar |
| Greiðslukjör |
| Hvað er ECDL ? |
| Námsvísir NTV (PDF) |
| Prófmiðstöð |
| QuickTjek |
| Stefna NTV |
| Sveigjanleiki í námi |
| Um NTV |
| Póstlisti | ||
Lengd námskeiðs: 156 kennslustundir.
Einingar til stúdentsprófs: 6
Staðgreiðsluverð: 196.000 kr. (Allar námsbækur eru innifaldar í verði).
Kjör fyrir atvinnulausa: 147.000 kr. (25% afsláttur) - geta líka sótt um 70.000 kr. styrk hjá VMST.
Inntökuskilyrði: Nemendur þurfa að hafa haldgóða þekkingu á Windows stýrikerfinu og reynslu af Internet notkun. Ekki er krafist þekkingar á teikniforritum, myndvinnslu- eða umbrotsforritum. Nemendur þurfa að geta lesið ensku þar sem námsbækur eru að hluta til á ensku.
Annað: Flest stéttarfélög styrkja félagsmenn til náms hjá NTV. Boðið er upp á VISA eða MasterCard lán.
Námskeið hefst: 13. sept.
Námskeiði lýkur: 8. des.
Kennsludagar og tími: Kennt er á mánudags- og miðvikudagskvöldum 18:00 - 22:00
Námskeið hefst: 14. sept.
Námskeiði lýkur: 9. des.
Kennsludagar og tími: Kennt er á þriðjudags- og fimmtudagseftimiðdögum kl. 13:00 - 17:00.
Hér er um að ræða hagnýtt nám fyrir þá sem hafa þörf fyrir tölvutæknina við gerð auglýsinga, kynningarefnis og bæklinga. Kennt er á þau forrit sem aðallega eru notuð við gerð kynningarefnis á stafrænu formi. Markmiðið er að nemendur geti komið frá sér hugmyndum á tölvutæku formi og að frágangur allra verka sé réttur hvort sem það er fyrir prentun eða Internetið.
Námskeiðið byggir á kennslu og fyrirlestrum, einnig er mikið um verklegar æfingar.
Við breyttum nafninu á þessu námskeiði á haustönn 2009 - það hét áður Auglýsingatækni.
Helstu námsgreinar:
Farið er í yfirferð námskeiðsins og verkferlið rakið frá hugmynd að fullunnu verki. Kynntir eru helstu boðmiðlar og boðleiðir út á markaðinn. Svarað er spurningum s.s. hvað er ímynd fyrirtækis og hvernig er hún endurspegluð og styrkt með auglýsingum. Hvað er kauphegðun og hvaða áhrif hafa auglýsingar á kauphegðun neitandans. Hvað er gert á auglýsingastofu og margt fleira.
Kennt er á Illustrator teikniforritið sem er eitt mest notaða teikniforritið á Íslandi í dag. Lögð er áhersla á að nemendur læri að tileinka sér þær aðferðir sem þarf til að koma góðri hugmynd á tölvutækt form. Mikið er um að nemendur vinna raunveruleg verkefni s.s. auglýsingar, umbúðir, lógó, stansverkefni og fleira þar sem forritið er notað til hins ýtrasta.
Kennt er á Photoshop myndvinnsluforritið. Hér er áhersla lögð á ljósmyndir. Farið er í helstu aðgerðir forritsins sem snúa að myndvinnslu. Kennd er uppbygging ljósmynda, mun á vectormyndum og punktamyndum, upplausn, litadýpt, skjáupplausn og marg fleira. Nemendur læra að vinna með lagskiptar myndir, blanda saman myndum, laga myndir og hreyfiauglýsingar fyrir netið.
Kennt er á InDEsign umbrotsforritið. Lögð er áhersla á að nemendur læri að tileinka sér einfaldar og markvissar aðferðir sem þarf til að koma góðri hugmynd á framfæri t.d. með gerð bæklings. Nemendur vinna raunverulegt verkefni - 4 síðna bækling.
Farið er yfir mismunandi litakerfi í myndvinnslunni. Fjallað er um mismuninn á RGB og CMYK o.fl. og almennt um litvinnslu í Photoshop.
Leturgerðir og leturfjölskyldur. Hvernig velja skal letur. Hvað má og hvað má ekki. Hvaða leturnotkun er vænlegust til árangurs.
Hvernig er best að skipuleggja verkefni. Hvernig á að ganga frá verkum til hinna ýmsu miðla. Hvernig á að skila af sér verkefnum og hvað ber að varast.
Í þessum hluta námskeiðisins er farið í tvær heimsóknir. Farið er í prentsmiðjuna Pentmet og verkferli prentsmiðjunnar skoðað. þá er farið er í Morgunblaðið þar sem Ólafur Brynjólfsson gæðastjóri Morgunblaðsins fer í mikilvægi þess að vanda frágang auglýsinga hvort er fyrir Morgunblaðið eða aðra miðla og fjallar um notkun litaprófíla í Photoshop. Snorri Guðjónsson tæknistjóri fjallar um PDF-skrifun EPS skjala.
Í lokaverkefninu vinna nemendur kynningarpakka fyrir fyrirtæki sem samanstendur af:
Nafnspjöldum, kveðjuspjöldum, bréfsefni, heilsíðuauglýsingu fyrir tímarit eða dagblað, 2 litlum auglýsingum sama efnis (kálfar) og 2 vefauglýsingum (GIF hreyfimyndum).
Lokaverkefnið er ekki eingöngu unnið í síðustu tímunum heldur er byrjað á því á miðju námskeiðinu og það unnið af og til meðan á námskeiðinu stendur.
NTV hefur hafið samstarf við Talent Ráðningar. Ráðgjafar frá Talent Ráðningum koma og spjalla við þá nemendur sem eru í tölvu- og tækninámi í NTV. Farið er yfir hvernig er best að bera sig að við atvinnuleit, gerð ferilskrár og fl. Mikil eftirspurn er eftir tölvu- og tæknifólki í dag en Talent Ráðningar sérhæfa sig í tækni- og sérfræðistörfum. Heimasíða Talent er www.talent.is