Nýi tölvu- og viðskiptaskólinn
prenta síðu | Skráning á námskeið | Skráning í próf | Staðsetning skólans
tölvunám veldu: starfsnám og brautir grafík og margmiðlun sérfræði námsbrautir sérfræði námskeið bókhaldsnám Ýmis námskeið     viðskiptanám
Nýi tölvu- og viðskiptaskólinn
Nýi tölvu- og viðskiptaskólinn | Hlíðasmára 9 | 201 Kópavogur | Sími 544 4500 | Fax 544 4501 | ntv@ntv.is
@ forsíða > Aðrir tenglar > Prófmiðstöð  

Prófmiðstöð

Sylvan Prometric er alþjóðleg stofnun sem sér um próf fyrir sérfræðinga sem vilja fá alþjóðlega viðurkenningu og vottun (certification) á sínu sviði. Yfir 1.500 vottunarstofur í 80 löndum eru tengdar inn á tölvunet Sylvan Prometric.
Hjá NTV hefur verið settur upp tölvubúnaður sem tengist þessu tölvuneti með öflugu öryggiskerfi og einnig hafa tveir starfsmenn NTV tekið nauðsynleg próf og öðlast réttindi til að halda alþjóðleg próf í mismunandi sérfræðigreinum. Sylvan Prometric sér um próf fyrir mörg stór tölvufyrirtæki s.s. Microsoft, IBM, Lotus, Hewlett Packard, Novell, Borland, Oracle o.fl. Með því að taka próf fá sérfræðingar alþjóðlega viðurkenningu s.s.: Microsoft Certified Systems Engineer, Certified Lotus Professional, Certified Novell Engineer, Oracle Certified Professional o.fl.
Mikilvægi slíkrar vottunar hefur aukist mikið á undanförnum árum og er í dag viðurkenndur mælikvarði á getu bæði þjónustu- og hugbúnaðarfyrirtækja og oft forsenda fyrir árangri og aukinni samkeppnishæfni t.d. varðandi útflutning á hugbúnaði og þjónustu. Einnig vilja mörg stærri fyrirtæki að starfsmenn tölvudeilda öðlist slíka viðurkenningu til að tryggja gæði þeirrar þjónustu sem tölvudeildin veitir. Umboðsaðilar fyrir erlendan hugbúnað fá oft mun betri kjör ef þeir geta sýnt fram á að þeir hafi starfsfólk sem hefur öðlast alþjóðlega vottun á kunnáttu sína. Fyrir starfsmanninn sjálfan er slík vottun mikilvægur mælikvarði á getu hans og hann verður verðmætari og eftirsóttari sem starfskraftur hérlendis sem erlendis.

Skráning í próf

Það þarf að skrá sig í próf með góðum fyrirvara og eigi síðar en þremur vinnudögum fyrir prófdag. Skráning getur farið fram símleiðis (544 4500), með faxi (544 4501) eða tölvupósti (skoli@ntv.is). Gefa þarf upp nafn próftaka, kennitölu, heima- og vinnusíma, auk heimilisfangs og póstnúmers ef próftaki er á eigin vegum.
Ef próftaki er á vegum fyrirtækis þarf að gefa upp nafn fyrirtækis, kennitölu, heimilisfang og póstnr. Þá þarf að gefa upp hvaða próf (nr.) viðkomandi óskar eftir að taka. Ef próftaki hefur áður tekið “Prometric” próf þarf hann að gefa upp það ID númer sem próftaka hefur þá verið úthlutað. Afpanta má próf með 48 tíma fyrirvara.
Prófgjald er ekki endurgreitt ef próftaki mætir ekki eða ef afpantað er með skemmri fyrirvara en 48 tímum.

Próftími og staður:

Til að byrja með verður opið fyrir próf einu sinni í viku þ.e. alltaf á mánudögum frá kl. 13:00 til 17:00. Bætt verður við prófdögum ef á þarf að halda vegna aðsóknar. Prófin eru haldin í húsakynnum NTV að Hlíðasmára 9, Kópavogi (2. hæð). Mikilvægt er að próftakar sanni deili á sér með því að framvísa persónuskilríkjum þar sem bæði kemur fram mynd og undirskrift (Bankakort eða vegabréf)

Verð og greiðslur:

Prófgjald er mismunandi eftir því um hvaða próf er að ræða. Reikningur fyrir prófgjaldi verður sendur þeim fyrirtækjum sem eru í viðskiptum við NTV. Annars þarf að greiða prófgjaldið a.m.k. 48 tímum áður en próf er tekið, að öðrum kosti verður prófið afpantað hjá Prometric. Að prófi loknu fá próftakar útskrift með niðurstöðum úr prófinu.

Fyrirtæki sem prófað er fyrir:

Sylvan Prometric sér um próf fyrir mjög mörg fyrirtæki þannig að neðangreindur listi er alls ekki tæmandi.

  • Adobe Apple Computers Inc.
  • Borland
  • Cisco Systems
  • Computer Associate
  • CompTIA
  • Corel Corporation
  • DEC
  • HP
  • IBM
  • Informix
  • Lotus
  • Microsoft
  • Novell.

Ítarlegar upplýsingar um prófin og þær alþjóðlegu gráður sem þau veita er að finna á heimasíðum fyrirtækjanna.

Skráning á námskeið | prenta síðu

Nýi tölvu- og viðskiptaskólinn | Hlíðasmára 9 | 201 Kópavogur | Sími 544 4500 | Fax 544 4501 | ntv@ntv.is