Nýi tölvu- og viđskiptaskólinn
prenta síðu | Skráning á námskeiđ | Skráning í próf | Stađsetning skólans
tölvunám veldu: starfsnám og brautir grafík og margmiđlun sérfrćđi námsbrautir sérfrćđi námskeiđ bókhaldsnám Ýmis námskeiđ     viđskiptanám
Nýi tölvu- og viđskiptaskólinn
Nýi tölvu- og viðskiptaskólinn | Hlíðasmára 9 | 201 Kópavogur | Sími 544 4500 | Fax 544 4501 | ntv@ntv.is
@ forsíða > Sérfrćđi námsbrautir > Diplomanám í forritun  

Diplómanám í forritun

Almennar upplýsingar

Lengd námskeiðs: 282 kennslustundir.
Einingar til stúdentsprófs: 18
Staðgreiðsluverð: 399.000 kr. (Allar námsbækur eru innifaldar í verði).
Kjör fyrir atvinnulausa: 299.250 kr. (25% afsláttur) - geta einnig sótt um 70.000 kr. styrk hjá VMST.
Inntökuskilyrði: Þeir sem hyggja á þetta nám þurfa að hafa stúdentspróf, hliðstæða menntun og reynslu og góða enskukunnáttu en flestar bækur eru á ensku.  Einnig góða almenna tölvukunnáttu
Annað: Flest stéttarfélög styrkja félagsmenn til náms hjá NTV. Boðið er upp á VISA eða MasterCard lán.

Næstu námskeið:

Kvöldnámskeið.

Námskeið hefst:  14. sept.
Námskeiði lýkur: 22. jan. 2011 (frí frá 17. des. til 3. jan.)

Kennsludagar og tími: Kennt er á þriðjudags-, og fimmtudagskvöldum  kl. 18:00 til 22:00 og á laugardögum kl. 13:00 til 17:00. (frí 3 laugardaga)

Um námskeiðið:

Forritun hefur verið kennd hjá NTV frá stofnun skólans 1997 og hafa um 250 nemendur útskrifast frá skólanum. Í náminu er leitast við að leggja traustan þekkingargrunn og byggja ofan á hann með skriflegum og verklegum æfingum. Að námi loknu eiga nemendur að hafa góða undirstöðuþekkingu og yfirsýn yfir þær aðferðir sem helst eru notaðar í nútíma hugbúnaðargerð.  Námið byggir á stöðluðum námskeiðum frá Microsoft og að námi loknu eiga nemendur að vera færir að taka eftirfarandi 3 alþjóðleg próf: 070-536, 070-502 og 070-561. Þessi 3 próf gefa 2 MCTS gráður.
Þessi alþjóðlegu próf eru ekki innifalin í verði námskeiðisins.
Auk þess eru tekin áfanagapróf eftir eftirfarandi áfanga: Forritun með C#, Gagnasafnsfræði, Gagnagrunnsforritun og Gluggaforritun.  Við lok náms fá nemendur viðurkenningarskjal, eikunnarskjal og áfangaskírteini með einingum.

Námið byggir bæði á kennslu og verklegum æfingum og þarf að gera ráð fyrir nokkru heimanámi.

Helstu námsgreinar:

Kynning á forritun (36 stundir)

Nemendur læra grundvallarhugtök og aðferðarfræði hugbúnaðargerðar.  Farið er yfir einkenni ýmissa forritunarmála, forritunarumhverfi, flæðirit, virkja, skilyrðissetningar, breytur, lykkjur o. fl.

Viðmótshönnun (12 stundir)

Ferið er yfir almennar reglur sem gilda varðandi hönnun notendaviðmóts.

Gagnagrunnsfræði (36 stundir)

Farið er í undirstöðuþætti gagnasafnsfræða, s.s. skipulag og vensl gagnasafna og fyrirspurnarmál (SQL). Farið verður í helstu þætti við greiningu og hönnun gagnasafna, einindavenslarit og normal form.  Kennt er á Microsoft SQL Server.

Forritun með C# (66 stundir)

Nemendur tileinka sér grunnþekkingu sem þarf til að hanna og búa til hlutbundin forrit með forritunarmálinu C# og Visual Studio .NET.  Farið er yfir helstu gagnatýpur og klasa, skil, söfn og strauma.  Fjölþráðaforritun skoðuð og hvernig hægt er að skrifa hugbúnað sem keyrir sem þjónusta í stýrikerfinu.  Þessi hluti er undirbúningur undir 070-536 prófið.
http://www.microsoft.com/learning/en/us/exam.aspx?ID=70-536&locale=en-us#tab2

Gluggaforritun (60 stundir)

Kennt er hvernig á að forrita gluggaforrit með forritunarmálinu C#.  Notast er við WPF (Windows Presentation Foundation).  Þessi hluti er undirbúningur fyrir 070-502 prófið.
http://www.microsoft.com/learning/en/us/exam.aspx?ID=70-502&locale=en-us#tab2
 

Gagnagrunnsforritun (36 stundir)

Nemendur læra að nota ADO.NET til að tengjast gagnagrunnum og vinna með gögn.
Þessi hluti er undirbúningur fyrir 070-561 prófið.
http://www.microsoft.com/learning/en/us/exam.aspx?ID=70-561&locale=en-us#tab2

Lokaverkefni (36 stundir)

Hér vinna nemendur í hópum að stærra forritunarverkefni. Verkefnið endurspeglar raunveruleg verkefni úr atvinnulífinu.

Samstarf við Talent Ráðningar

NTV hefur hafið samstarf við Talent Ráðningar. Ráðgjafar frá Talent Ráðningum koma og spjalla við þá nemendur sem eru í tölvu- og tækninámi í NTV. Farið er yfir hvernig er best að bera sig að við atvinnuleit, gerð ferilskrár og fl. Mikil eftirspurn er eftir tölvu- og tæknifólki í dag en Talent Ráðningar sérhæfa sig í tækni- og sérfræðistörfum. Heimasíða Talent er www.talent.is

Skráning á námskeið | prenta síðu

Nýi tölvu- og viðskiptaskólinn | Hlíðasmára 9 | 201 Kópavogur | Sími 544 4500 | Fax 544 4501 | ntv@ntv.is