Nýi tölvu- og viđskiptaskólinn
prenta síðu | Skráning á námskeiđ | Skráning í próf | Stađsetning skólans
tölvunám veldu: starfsnám og brautir grafík og margmiđlun sérfrćđi námsbrautir sérfrćđi námskeiđ bókhaldsnám Ýmis námskeiđ     viđskiptanám
Nýi tölvu- og viđskiptaskólinn
Nýi tölvu- og viðskiptaskólinn | Hlíðasmára 9 | 201 Kópavogur | Sími 544 4500 | Fax 544 4501 | ntv@ntv.is
@ forsíða > Starfsnám og brautir > Skrifstofu- og rekstrarnám  

Skrifstofu- og rekstrarnám

Almennar upplýsingar

Lengd námskeiðs: Tveggja anna nám - samtals 426 kennslustundir
Einingar til stúdentsprófs: 22
Staðgreiðsluverð: 365.000 kr. (Allar námsbækur og ECDL próf eru innifaldar í verði).
Kjör fyrir atvinnulausa: 273.759 kr. (25% afsláttur) - geta einnig sótt um 70.000 kr. styrk hjá VMST.
Inntökuskilyrði: Nemendur þurfa að hafa lokið grunnskólaprófi og vera orðnir 18 ára.
Annað: Flest stéttarfélög styrkja félagsmenn til náms hjá NTV.
Boðið er upp á VISA eða MasterCard lán.

Næstu námskeið:

Kvöld- og helgarnámskeið:

Námskeið hefst: 14. sep.
Fyrri önn lýkur: 16. des.
Kennsludagar og tími: Kennt er á þriðjudags- og fimmtudagskvöldum 18:00 - 22:00 og laugardagsmorgnum 08:30 - 12:30, . Á seinni önninni (vorið 2011) er einnig kennt tvö kvöld í viku og hluta af laugardegi en einnig er mögulegt að taka þann hluta í morgunnámskeiði.

Morgunnámskeið:

Námskeið hefst: 
13. sept..
Fyrri önn lýkur:  15 des.
Kennsludagar og tími: Á fyrri önninni er kennt 3 daga í viku þ.e. mánudaga, miðvikudaga og föstudaga kl. 8:30 - 12:30.  Á seinni önninni (vorið 2011) er mögulegt að velja á milli morgun- eða kvöldnámskeiða.

Um námskeiðið:

Markmiðið með þessu námskeiði er að auka enn frekar samkeppnishæfni nemenda og búa þá vel undir krefjandi störf á vinnumarkaðnum. Auk þess að undirbúa nemendur til starfa við almenn skrifstofustörf er lögð áhersla á að gera nemendur færari í bókhaldsstörfum og skapa ákveðna sérþekkingu og færa þá nær sjálfum rekstrinum. Flestum námsgreinum líkur með prófi en auk þess er gefin einkunn fyrir lokaverkefni og mætingar.  Í tölvufögunum eru tekin alþjóðleg ECDL próf og fá nemendur alþjóðlegt prófskírteini sem gefið er út af Skýrslutæknifélagi Íslands. Á seinni önninni er lögð áhersla að styrkja nemendur í sjálfstæðum vinnubrögðum og auka færni þeirra við færslu og uppgjör bókhalds. Að loknu námskeiðinu eiga nemendur að vera færir að sjá um viðskiptamannakerfi, launakerfi og vera færir um að framkvæma einföld uppgjör á bókhaldi ásamt öllum þeim afstemmingum og lokafærslum sem nauðsynlegar eru. Að námi loknu verða nemendur mun verðmætari starfsmenn í fyrirtækjum og geta hagnýtt upplýsingar úr bókhaldi á hagnýtan hátt.

Námið byggir á mikilli verkefnavinnu og þess gætt að verkefni sem nemendur leysa séu hagnýt. Gera má ráð fyrir nokkurri heimavinnu. Námskeiðið er algjörlega óháð reynslu nemenda á mismunandi bókhaldskerfum þar sem námið er að mestu leyti unnið í Excel. Í takt við það munu nemendur ennfremur styrkja þekkingu sýna á hagnýtri notkun Excel.  Námið samanstendur bæði af kennslu og verklegum æfingum og eru próf í helstu greinum.  Allar kennslugreinar eru kenndar frá grunni og er rétt að gera ráð fyrir nokkurri heimavinnu. Vönduð námsgögn eru innifalin í verði.

Skipting og lengd námsgreina:

Námsefni á fyrri önn:

  • Mannleg samskipti / streitustjórnun - 6 stundir
  • Bókhald - 36 stundir
  • Tölvubókhald - 54 stundir
  • Verslunarreikningur - 24 stundir
  • Tímastjórnun - 6 stundir
  • Windows stýrikerfið og Internetið - 18 stundir
  • Word ritvinnsla - 30 stundir
  • Excel töflureiknir - 30 stundir
  • Outlook samskiptakerfið - 6 stundir
  • Gerð kynningarefnis í PowerPoint - 12 stundir
  • Framkoma og framsögn - 6 stundir
  • Lokaverkefni - 30 stundir

Námsefni á seinni önn:

  • Sölukerfi - 18 stundir
  • Launakerfi - 24 stundir
  • Fyrningar - 12 stundir
  • Lán - 18 stundir
  • Afstemmingar og lokafærslur - 18 stundir
  • Gerð ársreikninga - 30 stundir
  • Lokaverkefni - 24 stundir

Helstu námsgreinar:

Bókhald (36 stundir)

Kennd er undirstaða bókhalds þar sem helstu reikningar eru teknir fyrir og verkefni færð í dagbók. Kennd er afstemming með prófjöfnuði ásamt reikningsjöfnuði og gerð efnahags- og rekstrarreiknings. Mikið er um verklegar æfingar.

Tölvubókhald (54 stundir)

Kennd er uppbygging bókhaldslykla, merking fylgiskjala, notkun bókunarbeiðna, hvernig færslur eru skráðar, afstemmingar þ.m.t., hvernig stemmt er af við bankayfirlit. Farið er yfir færslur fyrir nokkra mánuði með tilheyrandi uppgjöri og útskriftum fyrir hvern mánuð. Einnig er kennt á launabókhald.
Kennt er á viðskiptahugbúnaðinn Navision Attain sem er eitt mest notaða bókhaldsforrit á markaðnum í dag.

Verslunarreikningur (24 stundir)

Kenndur er sá hluti af stærðfræðinni sem mest er notaður í almennri skrifstofuvinnu, s.s. prósentureikningur, afsláttur og álagning, samsettur prósentureikningur, útreikningur marktölu (vísitala), útreikningur á vörureikningi og skyndiuppgjör vörureiknings, útreikningur á veltuhraða, vaxtareikningur, samsettir vextir, framlegðar- og framlagsútreikningur. Mikið af verklegum æfingum.

Windows stýrikerfið og Internetið (18 stundir)

Farið er í uppbyggingu tölvunnar og grunnatriði Windows stýrikerfisins og sérstök áhersla lögð á þá þætti sem tengjast almennri notkun, s.s. afritun og vistun gagna, stjórnun útprentunar o.fl. (Próf)
Kennt er hvernig nota má þá möguleika sem Internetið býður upp á. M.a. er kennd notkun á tölvupósti og hvernig ferðast má um veraldarvefinn.

Word ritvinnsla (30 stundir)

Farið er yfir allar helstu aðgerðir sem ritvinnsluforritið býður upp á við ritun, leiðréttingar og formun texta, leturgerðir, flutning, afritun, vistun og útprentun. Mikið um verklegar æfingar.

Excel töflureiknir (30 stundir)

Farið er yfir grunnuppbyggingu töflureiknisins. Kennd er uppbygging á reiknilíkönum og helstu aðgerðir við útreikninga og útlitshönnun á töflum. Einnig er kennt hvernig má breyta töflum yfir í myndrænt form, s.s. súlu- eða kökurit og margt fleira.

PowerPoint gerð kynningarefnis (12 stundir)

Kennt er hvernig má útbúa skemmtilegar kynningar (glærur) með PowerPoint forritinu sem er hluti af Microsoft Office kerfinu.

Mannleg samskipti og streitustjórnun (6 stundir)

Skoðum hér hvaða þýðingu hnitmiðuð samskipti hafa í bæði starfi og einkalífi, og ekki síður hvaða áhrif samskiptin við okkur sjálf hafa á líf og líðan. Leitumst einnig við að svara: Hvernig höndlum við best erfið samskipti? Auk þess lærum við að þekkja merki streitu og árangursríkar aðferðir skoðaðar við að vinna sig út úr því á sem stystum tíma. Skoðum hugtök eins og stress, áhyggjur, kvíða, þunglyndi o.þ.h. og skoðum hvernig slík ferli eru stöðvuð.

Tímastjórnun (6 stundir)

Farið er í helstu þætti tímastjórnunar og mikilvægi þess að setja sér raunhæf markmið og ná þeim.

Outlook samskiptakerfið (6 stundir)

Outlook forritið er notað til samskipta með tölvupósti, til að bóka fundi, halda utanum verkefni, til tímastjórnunar og til að skrá og viðhalda upplýsingum um tengiliði og samskiptum við þá. Einnig er í Outlook öflugt dagbókar- og minnismiðakerfi.

Framkoma og framsögn (6 stundir)

Kennd eru lykilatriði hvað varðar framkomu og tækni við að koma fram og halda kynningar.

Lokaverkefni (30 stundir)

Það er samróma álit allra sem fara í þetta nám að þetta sé í senn skemmtilegasti og erfiðasti hluti námsins. Nemendum er skipt niður í fjögurra manna hópa og eiga þeir að finna vöru eða þjónustu sem þeir markaðsetja. Verkefnið tekur á öllum þáttum námskeiðsins þar sem það er sett upp í Word, birtingar- og kostnaðaráætlanir eru unnar í Excel og á síðasta degi námskeiðsins heldur hver hópur „sölukynningu“ sem gerð er í Power Point.

Sölukerfi (24 stundir)

Farið er m.a. í uppsetningu og skráningu viðskiptavina og vara. Móttöku og skráningu pantana, gerð reikninga og kreditreikninga auk margvíslega skýrslugerð.

Launakerfi (24 stundir)

Byrjað er á því að skoða kjarasamninga almennt ásamt reglum um reiknað endurgjald. Fjallað er um mismunandi launaliði og hlunnindi ásamt frádráttarliðum. Þá eru reiknuð laun og launaseðlar gerðir í Excel. Loks er farið í launakerfi sem hluta af bókhaldskerfi og farið í gegnum allt ferlið þar, allt frá því að stofna launþega og yfir í að keyra út skilagreinar. Fjallað er um skattkort, opinber gjöld, lífeyrissjóði og mismunandi tegundir af skilagreinum og launaframtal.

Fyrningar (12 stundir)

Fjallað er um fyrningar fyrirtæka og hvaða reglur fjalla um þær. Fjallað er um mismandi reglur fyrninga samkvæmt skattareglum og venjum í reikningshaldi. Nemendur fylla út fyrningatöflur, bæði skattalegar og reikningshaldslegar, og gera viðeigandi færslur sem hluta af uppgjöri.

Lán (18 stundir)

Fjallað er um lán fyrirtækja ásamt því að farið er ítarlega í uppreikning á lánum miðað við verðbólgu og gengi. Fjallað um mun á langtíma og skammtímaskuldum og næsta árs afborganir reiknaðar og færðar. Nemendur reikna lánatöflur og færa nauðsynlegar færslur sem hluta af uppgjöri.

Skattskil (24 stundir)

Fjallað er um virðisaukaskatt og virðisaukaskattsafstemmingar auk þess sem fjallað er um hagnýt atriði varðandi skattskil fyrirtækja sem tekjur og gjöld, staðgreiðslu og tekjuskatt fyrirtækja.

Afstemmingar og lokafærslur (18 stundir)

Gerð ársreikninga (48 stundir)

Farið er í lykilafstemmingar sem óskað er eftir við ársuppgjör. Nemendur læra hvernig má flýta fyrir endurskoðunarvinnu og gera þann feril bæði styttri og ódýrari. Ennfremur læra nemendur að ganga frá uppgjöri sjálfir með öllum þeim færslum sem þarf að gera. Fjallað er um uppbyggingu ársreiknings – áritanir, rekstrarreikning-, efnahagsreikning, sjóðstreymi, skýringar og sundurliðanir. Þá er ennfremur reiknaðar algengar kennitölur sem nýtast úr upplýsingum í ársreikningum. Nemendur búa til ársreikning frá grunni .

Lokaverkefni (24 stundir)

Nemendur gera ítarlegt einstaklings lokaverkefni þar sem þeir þurfa framkvæma uppgjör á fyrirtæki. Í lokaverkefninu koma fyrir öll atriði sem fjallað hefur verið um á námskeiðinu

Samstarf við Capacent Ráðningar

NTV er í samstarfi við Capacent Ráðningar í þeim tilgangi að auka líkur á að árangur náist hjá þeim nemendum í starfsnámi sem eru að leita eftir nýju starfi að námi loknu. Ráðgjafar frá Capacent koma og halda kynningar um það hvernig nemendur eigi að bera sig að varðandi umsóknarferli, ferilskrá og ráðningarviðtöl. Vefur Capacent er á slóðinni http://www.capacent.is

Skráning á námskeið | prenta síðu

Nýi tölvu- og viðskiptaskólinn | Hlíðasmára 9 | 201 Kópavogur | Sími 544 4500 | Fax 544 4501 | ntv@ntv.is