| veldu: | starfsnám og brautir | grafík og margmiđlun | sérfrćđi námsbrautir | sérfrćđi námskeiđ | bókhaldsnám | Ýmis námskeiđ |

| Afslćttir og styrkir til atvinnulausra |
| Áfangar - einingar |
| Greiđslukjör |
| Hvađ er ECDL ? |
| Námsvísir NTV (PDF) |
| Prófmiđstöđ |
| QuickTjek |
| Stefna NTV |
| Sveigjanleiki í námi |
| Um NTV |
| Póstlisti | ||
Lengd námskeiðs: Tveggja anna nám - samtals 420 kennslustundir.
Einingar til stúdentsprófs: 16
Staðgreiðsluverð: 383.000 (Allar námsbækur eru innifaldar í verði).
Kjör fyrir atvinnulausa: 287.250 (25% afsláttur) - geta einnig sótt um 70.000 kr. styrk hjá VMST.
Inntökuskilyrði: Nemendur þurfa að hafa lokið grunnskólaprófi og vera orðnir 18 ára.
Annað: Flest stéttarfélög styrkja félagsmenn til náms hjá NTV.
Boðið er upp á VISA eða MasterCard lán.
Námskeið hefst: 14. sept.
Námskeiði lýkur: 16. des.
Kennsludagar og tími: Kennt er á þriðjudags- og fimmtudagskvöldum 18:00 - 22:00 og laugardagsmorgnum 08:30 - 12:30. Seinni önn er kennd um vorið 2011. Á seinni önn er kennt tvö kvöld í viku (mánudags-, og miðvikudagskvöldum) 18:00 - 22:00. Einnig er mögulegt að velja síðdegisnámskeið sem kennt er tvisvar í viku.
Námskeið hefst: 13. sept.
Námskeiði lýkur: 17. des.
Kennsludagar og tími: Kennt er á mánudags,- miðvikudags- og föstudagsmorgnum 8:30 - 12:30. Seinni önn er kennd um vorið 2011. Á seinni önn er kennt tvö kvöld í viku 18:00 - 22:00. Einnig er mögulegt að velja síðdegisnámskeið sem kennt er tvisvar í viku.
Nemendur öðlast þjálfun og hæfni á sviði sölumennsku og gerð kynningarefnis. Rík áhersla er lögð á ábyrgð sölumannsins og hlutverk hans í stefnumótun fyrirtækisins. Á seinni önninni er lögð áhersla á að gera nemendur færa um að hanna og útbúa hvers konar kynningarefni auk þess að vera tengiliður fyrirtækis við auglýsingastofur, fjölmiðla og prentsmiðjur.
Með þessu opnast nýir möguleikar hjá fyrirtækjum og stofnunum sem útbúa sitt eigið kynningarefni og styrkja þar með söluferilinn.
Tekin eru saman tvö stór námskeið sem styðja mjög vel hvort annað, þ.e. Sölu- og markaðsnám og Grafísk hönnun. Námskeiði lýkur með viðurkenningarskjali og prófskírteini. Námið samanstendur bæði af kennslu og verklegum æfingum og eru próf í helstu námsgreinum. Rétt er að gera ráð fyrir nokkurri heimavinnu.
Námsefni á fyrri önn:
Námsefni á seinni önn:
Skilgreind eru helstu hlutverk og ábyrgð í sölustarfi. Farið er yfir söluferilinn og hvaða þættir skipta mestu máli í samskiptum sölumanna og viðskiptavina. Kennd er skipulagning og forgangsröð söluaðgerða og hvernig hægt er að læra að þekkja viðskiptavininn.
Farið er í uppbyggingu tölvunnar og grunnatriði Windows stýrikerfisins. Lögð er áhersla á þætti sem tengjast almennri meðhöndlun gagna, s.s. Afritun, vistun, stjórnun útprentunar o.fl. Kennd er notkun Internetsins (vefsins) og hvernig hægt er að nýta sér það sem verkfæri í sölustarfi.
Hnitmiðuð og góð samskipti eru undirstaða allra viðskipta. Taktu eftir þörfum viðskiptavinar fljótt og vel. Leitumst við að svara: Hvernig náum við fljótt góðu sambandi við viðmælanda? Hvernig berum við okkur að í erfiðum samskiptum?
Farið er m.a. Í uppsetningu og skráningu viðskiptavina, móttöku pantana, reikningsútskrift, vaxtaútreikning, aldursgreiningu skulda, innheimtubréf, innborganir og margvíslega skýrslugerð.
Farið er yfir þann hluta stærðfræðinnar sem mest er notaður í almennu sölustarfi, s.s. Prósentu- og vaxtareikning, afslátt, álagningu, útreikning á marktölu (vísitölu) veltuhraða ásamt framlegðarútreikningi við vörusölu. Mikið er um verklegar æfingar og lýkur þessum þætti námsins með prófverkefni.
Farið er yfir helstu aðgerðir sem ritvinnsluforritið býður upp á og hvernig nota má þennan hugbúnað við gerð sölutilboða. Farið er yfir helstu aðgerðir s.s. Ritun, leiðréttingar, formun texta, leturgerðir, flutning, afritun, vistun gagna og útprentun. Nemendur æfa sig við gerð tilboða og lýkur þessum hluta námskeiðsins með prófverkefni.
Farið er í grunnþætti markaðsfræðinnar og söluferilsins, undirbúning söluaðgerða og hvernig hægt er að nýta tímann sem best við að ná árangri. Nemendur læra aðferðir við söluleit og hvernig hægt er að nálgast viðskiptavininn. Farið er yfir þá þætti sem tengjast stjórnun og yfirsýn söluverkefna og hvernig hægt er að setja sér sölumarkmið. Þessum þætti námsins lýkur með prófverkefni.
Farið er yfir uppbyggingu töflureiknisins ásamt helstu aðgerðum við útreikninga og útlitshönnun á töflum. Kennt er hvernig má breyta töflum í myndrænt form, s.s. Súlu- eða kökurit og hvernig má nota þetta verkfæri við gerð verðlista, söluáætlana o.fl. Þessum hluta námskeiðsins lýkur með prófverkefni.
Kennd eru grundvallaratriði í sölutækni og söluhringurinn tekinn fyrir. Farið er í þá þætti sem einkenna góðan sölumann, kauphegðun viðskiptavina og manngerðir kaupandans. Nemendur læra að þekkja söluferilinn og mismunandi aðferðir við að loka sölunni. Einnig er farið í framsögn og hvernig hægt er að gera kynningar áhrifaríkar og skilvirkar. Verkefni unnin í hópstarfi.
Farið er í helstu þætti tímastjórnunar og mikilvægi þess að setja sér raunhæf markmið og ná þeim.
Kennt er hvernig nota má hugbúnaðinn Power Point til að útbúa sölukynningar, glærur og annað kynningarefni á vörum og þjónustu sem verið er að selja.
Kennd eru lykilatriði hvað varðar framkomu og tækni við að koma fram og halda kynningar.
Kynnt eru undirstöðuatriði við gerð auglýsinga og mismunandi gerð kynningarefnis. Kynntar eru mismunandi boðleiðir út á markaðinn, farið í greiningu markhópa, leturgerðir, almenna skynsemi og fleiri hluti sem skipta máli við gerð og hönnun kynningarefnis.
Farið er í tilgang og markmið markaðsrannsókna, hvar þær eiga við og hvar ekki. Einnig er farið í gegn um uppbyggingu þeirra. Ein netrannsókn er unnin frá upphafi til enda, ásamt öðrum verkefnum.
Í þessum seinni hluta markaðsfræðinnar er farið í þá þætti sem snerta markaðsetningu á þjónustu þ.e. Hvernig það er frábrugðið markaðssetningu á áþreifanlegri vöru. Einnig er farið í hvernig staðið er að markaðssetningu á internetinu, hvað ber að forðast og hvaða þættir það eru sem leggja þurfi sérstaka áherslu á.
Kennd eru grunnatriði í Publisher til að setja saman bæklinga, nagnspjöld og fl.
Ýtarlega er farið í gegnum þá þætti sem snerta markaðsrannsóknir, forvinnu og vinnslu á ítarlegri rannsókn, tölfræði við úrvinnslu og skekkjumörk. Unnið er með flóknari rannsóknartæki (hugbúnað). Jafnframt er farið í nauðsyn skýrslugerðar.
Nemendur leysa verkefni í hópvinnu. Gefin er prófeinkunn fyrir framsetningu, sölu- og kynningartækni, spurningatækni og lokaniðurstöðu.
Farið er í yfirferð námskeiðsins og verkferlið rakið frá hugmynd að fullunnu verki. Kynntir eru helstu boðmiðlar og boðleiðir út á markaðinn. Svarað er spurningum s.s. Hvað er ímynd fyrirtækis og hvernig er hún endurspegluð og styrkt með auglýsingum. Hvað er kauphegðun og hvaða áhrif hafa auglýsingar á kauphegðun neitandans. Hvað er gert á auglýsingastofu og margt fleira.
Kennt er á Illustrator teikniforritið sem er eitt mest notaða teikniforritið á Íslandi í dag. Lögð er áhersla á að nemendur læri að tileinka sér þær aðferðir sem þarf til að koma góðri hugmynd á tölvutækt form. Mikið er um að nemendur vinna raunveruleg verkefni s.s. Auglýsingar, umbúðir, lógó, stansverkefni og fleira þar sem forritið er notað til hins ýtrasta.
Farið er í allar helstu aðgerðir forritsins. Kennd er uppbygging ljósmynda, mun á vectormyndum og punktamyndum, upplausn, litadýpt, skjáupplausn og helstu atriði í sambandi við innskönnun. Nemendur læra að vinna með lagskiptar myndir, blanda saman myndum, laga myndir og hreyfiauglýsingar fyrir netið.
Kenndar eru algengustu aðferðir litablöndunar, val lita út frá markhópum og litun svart/hvítra. Farið er í helstu kerfi litaflokkunar (RGB - CMYK - lab - HSB o.fl.) og litvinnslu í Photoshop og Illustrator.
Farið er í notkun á Adobe Type Manager og sýnt hvernig halda á utan um leturgerðir. Við skoðum mismuninn á TrueType og Postscript letrum og hvernig mismunandi letur geta hentað í verkefni.
Farið verður í uppbyggingu auglýsinga, bæklinga og annars prentaðs efnis. Skoðuð verða mismunandi brot, pappírsstærðir, pappírsgerðir, prentlitir og hvernig vinnureglur og skipulag geta sparað tíma og fyrirhöfn.
Í þessum hluta námskeiðsins er farið í þrjár heimsóknir. Farið er í prentsmiðju og verkferli prentsmiðjunnar er skoðað. Dagblaðsútgáfa er skoðuð þar sem gæðastjóri blaðsins fer í mikilvægi þess að vanda frágang auglýsinga hvort sem er fyrir útgáfuna sjálfa eða aðrar prentsmiðjur, notkun litaprófíla í Photoshop og PDF-skrifun EPS skjala . Að lokum heimsækja nemendur fyrirtæki þar sem skoðaðir eru þeir möguleikar sem fyrir hendi eru þegar kemur að umhverfismerkingum.
Í þessu lokaverkefni vinna nemendur kynningarpakka fyrir fyrirtæki sem samanstendur af:
Lokaverkefnið er ekki eingöngu unnið í síðustu tímunum heldur er byrjað á því og það unnið af og til á meðan námskeiðinu stendur.
NTV er í samstarfi við Capacent Ráðningar í þeim tilgangi að auka líkur á að árangur náist hjá þeim nemendum í starfsnámi sem eru að leita eftir nýju starfi að námi loknu. Ráðgjafar frá Capacent koma og halda kynningar um það hvernig nemendur eigi að bera sig að varðandi umsóknarferli, ferilskrá og ráðningarviðtöl.Vefur Capacent er á slóðinni http://www.capacent.is