Nýi tölvu- og viđskiptaskólinn
prenta síðu | Skráning á námskeiđ | Skráning í próf | Stađsetning skólans
tölvunám veldu: starfsnám og brautir grafík og margmiđlun sérfrćđi námsbrautir sérfrćđi námskeiđ bókhaldsnám Ýmis námskeiđ     viđskiptanám
Nýi tölvu- og viđskiptaskólinn
Nýi tölvu- og viðskiptaskólinn | Hlíðasmára 9 | 201 Kópavogur | Sími 544 4500 | Fax 544 4501 | ntv@ntv.is
@ forsíða > Starfsnám og brautir > Sölu-, markađs- og rekstrarnám  

Sölu,- markaðs- og rekstrarnám

Almennar upplýsingar

Lengd námskeiðs: Tveggja anna nám - samtals 432 kennslustundir
Einingar til stúdentsprófs: 19
Staðgreiðsluverð: 385.000 kr. (Allar námsbækur eru innifaldar í verði).
Kjör fyrir atvinnulausa: 288.750 kr. (25% afsláttur) - geta einnig sótt um 70.000 kr. styrk hjá VMST.
Inntökuskilyrði: Nemendur þurfa að hafa lokið grunnskólaprófi og vera orðnir 18 ára
Annað: Flest stéttarfélög styrkja félagsmenn til náms hjá NTV.
Boðið er upp á VISA eða MasterCard lán.

Næstu námskeið:

Kvöld- og helgarnámskeið:

Námskeið hefst: 14. sept.
Fyrri önn lýkur: 16. des.
Kennsludagar og tími: Kennt er á þriðjudags- og fimmtudagskvöldum 18:00 - 22:00 og laugardagsmorgnum 08:30 - 12:30 2008. Seinni önn er kennd vorönn 2011.
Á seinni önn er mögulegt að velja á milli kvöld- eða morgunnámskeiðs.

Morgunnámskeið:

Námskeið hefst: 13. sept.
Fyrri önn lýkur: 17. des.
Kennsludagar og tími: Kennt er á mánudags,- miðvikudags- og föstudagsmorgnum 8:30 - 12:30. Seinni önn er kennd um vorið 2011. Á seinni önn er mögulegt að velja á milli kvöld- eða morgunnámskeiðs.

Um Námskeiðið:

Nemendur öðlast þjálfun og hæfni á sviði sölumennsku þar sem rík áhersla er lögð á ábyrgð sölumannsins og hlutverk hans í stefnumótun fyrirtækisins. Í síðari hluta námsins er farið í hagnýta markaðsfræði, fjármálastjórnun og áætlanagerð. Þetta er frábært nám fyrir alla sem starfa við sölumennsku eða eigin rekstur. Tekin eru saman tvö stór námskeið sem styðja hvort annað margvíslega, þ.e. Sölu- og markaðsnám og Frumkvöðla og rekstrarnám. Námskeiði lýkur með viðurkenningarskjali og prófskírteini.
Námið samanstendur bæði af kennslu og verklegum æfingum og eru próf í helstu námsgreinum. Rétt er að gera ráð fyrir nokkurri heimavinnu.

Skipting og lengd námsgreina:

Fyrri önn:

  • Hlutverk sölumanns - 6 stundir
  • Windows, Internet og tölvupóstur - 12 stundir
  • Samskipti við viðskiptavini - 6 stundir
  • Sölu- og viðskiptakerfi (Navision) - 24 stundir
  • Verslunarreikningur - 24 stundir
  • Word ritvinnsla og tilboðagerð - 30 stundir
  • Markaðsfræði - 30 stundir
  • Excel töflureiknir og gerð söluáætlana - 30 stundir
  • Sölutækni og aðferðir - 18 stundir
  • Tímastjórnun - 6 stundir
  • PowerPoint og gerð sölukynninga - 12 stundir
  • Framkoma og framsögn - 6 stundir
  • Auglýsingatækni - 6 stundir
  • Markaðsrannsóknir I - 6 stundir
  • Markaðsfræði II - 6 stundir
  • Publisher umbrot - 6 stundir
  • Markaðsrannsóknir II - 6 stundir
  • Lokaverkefni og sölukynning - 30 stundir

Seinni önn:

  • Frumkvöðlar og framtíðarsýn- 6 stundir
  • Stofnun fyrirtækja - 6 stundir
  • Hagnýt markaðsfræði - 42 stundir
  • Excel við áætlanagerð - 24 stundir
  • Fjármálastjórnun og framlegð - 30 stundir
  • Hagnýtur bókhaldsskilningur - 12 stundir
  • Gerð viðskiptaáætlunar - 48 stundir

Helstu námsgreinar:

Hlutverk sölumanns (6 stundir)

Skilgreind eru helstu hlutverk og ábyrgð í sölustarfi. Farið er yfir söluferilinn og hvaða þættir skipta mestu máli í samskiptum sölumanna og viðskiptavina. Kennd er skipulagning og forgangsröð söluaðgerða og hvernig hægt er að læra að þekkja viðskiptavininn.

Windows, Internet og tölvupóstur (12 stundir)

Farið er í uppbyggingu tölvunnar og grunnatriði Windows stýrikerfisins. Lögð er áhersla á þætti sem tengjast almennri meðhöndlun gagna, s.s. afritun, vistun, stjórnun útprentunar o.fl. Kennd er notkun Internetsins (vefsins) og hvernig hægt er að nýta sér það sem verkfæri í sölustarfi.

Samskipti við viðskiptavini (6 stundir)

Hnitmiðuð og góð samskipti eru undirstaða allra viðskipta. Taktu eftir þörfum viðskiptavinar fljótt og vel. Leitumst við að svara: Hvernig náum við fljótt góðu sambandi við viðmælanda? Hvernig berum við okkur að í erfiðum samskiptum?

Sölu- og viðskiptakerfi (24 stundir)

Farið er m.a. í uppsetningu og skráningu viðskiptavina, móttöku pantana, reikningsútskrift, vaxtaútreikning, aldursgreiningu skulda, innheimtubréf, innborganir og margvíslega skýrslugerð.

Verslunarreikningur (30 stundir)

Farið er yfir þann hluta stærðfræðinnar sem mest er notaður í almennu sölustarfi, s.s. prósentu- og vaxtareikning, afslátt, álagningu, útreikning á marktölu (vísitölu) veltuhraða ásamt framlegðarútreikningi við vörusölu. Mikið er um verklegar æfingar og lýkur þessum þætti námsins með prófverkefni.

Word ritvinnsla og tilboðagerð (30 stundir)

Farið er yfir helstu aðgerðir sem ritvinnsluforritið býður upp á og hvernig nota má þennan hugbúnað við gerð sölutilboða. Farið er yfir helstu aðgerðir s.s. ritun, leiðréttingar, formun texta, leturgerðir, flutning, afritun, vistun gagna og útprentun. Nemendur æfa sig við gerð tilboða og lýkur þessum hluta námskeiðsins með prófverkefni.

Markaðsfræði og skipulag söluferils (30 stundir)

Farið er í grunnþætti markaðsfræðinnar og söluferilsins, undirbúning söluaðgerða og hvernig hægt er að nýta tímann sem best við að ná árangri. Nemendur læra aðferðir við söluleit og hvernig hægt er að nálgast viðskiptavininn. Farið er yfir þá þætti sem tengjast stjórnun og yfirsýn söluverkefna og hvernig hægt er að setja sér sölumarkmið. Þessum þætti námsins lýkur með prófverkefni.

Excel töflureiknirinn og gerð söluáætlana (30 stundir)

Farið er yfir uppbyggingu töflureiknisins ásamt helstu aðgerðum við útreikninga og útlitshönnun á töflum. Kennt er hvernig má breyta töflum í myndrænt form, s.s. súlu- eða kökurit og hvernig má nota þetta verkfæri við gerð verðlista, söluáætlana o.fl. Þessum hluta námskeiðsins lýkur með prófverkefni.

Sölutækni og aðferðir (18 stundir)

Kennd eru grundvallaratriði í sölutækni og söluhringurinn tekinn fyrir. Farið er í þá þætti sem einkenna góðan sölumann, kauphegðun viðskiptavina og manngerðir kaupandans. Nemendur læra að þekkja söluferilinn og mismunandi aðferðir við að loka sölunni. Einnig er farið í framsögn og hvernig hægt er að gera kynningar áhrifaríkar og skilvirkar. Verkefni unnin í hópstarfi.

Tímastjórnun (6 stundir)

Farið er í helstu þætti tímastjórnunar og mikilvægi þess að setja sér raunhæf markmið og ná þeim.

Sölukynningar með Power Point (12 stundir)

Kennt er hvernig nota má hugbúnaðinn Power Point til að útbúa sölukynningar, glærur og annað kynningarefni á vörum og þjónustu sem verið er að selja.

Framkoma og framsögn (6 stundir)

Kennd eru lykilatriði hvað varðar framkomu og tækni við að koma fram og halda kynningar.

Auglýsingatækni (6 stundir)

Kynnt eru undirstöðuatriði við gerð auglýsinga og mismunandi gerð kynningarefnis. Kynntar eru mismunandi boðleiðir út á markaðinn, farið í greiningu markhópa, leturgerðir, almenna skynsemi og fleiri hluti sem skipta máli við gerð og hönnun kynningarefnis.

Markaðsrannsóknir I (12 stundir)

Farið er í tilgang og markmið markaðsrannsókna, hvar þær eiga við og hvar ekki. Einnig er farið í gegn um uppbyggingu þeirra. Ein netrannsókn er unnin frá upphafi til enda, ásamt öðrum verkefnum.

Markaðsfræði II (6 stundir)

Í þessum seinni hluta markaðsfræðinnar er farið í þá þætti sem snerta markaðsetningu á þjónustu þ.e. hvernig það er frábrugðið markaðssetningu á áþreifanlegri vöru. Einnig er farið í hvernig staðið er að markaðssetningu á Internetinu, hvað ber að forðast og hvaða þættir það eru sem leggja þurfi sérstaka áherslu á.

Publisher umbrot (6 stundir)

Kennd eru grunnatriði í Publisher til að setja saman bæklinga, nafnspjöld og fl.

Markaðsrannsóknir II (6 stundir)

Ýtarlega er farið í gegnum þá þætti sem snerta markaðsrannsóknir, forvinnu og vinnslu á ítarlegri rannsókn, tölfræði við úrvinnslu og skekkjumörk. Unnið er með flóknari rannsóknartæki (hugbúnað). Jafnframt er farið í nauðsyn skýrslugerðar.

Lokaverkefni (30 stundir)

Nemendur leysa verkefni í hópvinnu. Gefin er prófeinkunn fyrir framsetningu, sölu- og kynningartækni, spurningatækni og lokaniðurstöðu.

Frumkvöðlar og framtíðarsýn (6 stundir)

Hvert er hlutskipti frumkvöðla og hvað einkennir þennan hóp annað en að sjá möguleika og tækifæri í hinu augljósa sem öllum öðrum yfirsést? Er hægt að beisla þá orku sem þeir búa yfir og koma henni í umbúðir sem t.d. fjárfestar skilja. Oft er það einkennandi fyrir frumkvöðla að vera röreygðir á eigin hugmyndir og skynja markaðinn út frá rauntíma og á eigin forsendum.
Í þessum áfanga verður nemendum kennd NLP (Neuro-Linguistic Programming) aðferðafræðin til að ferðast inn í framtíðina og öðlast með því yfirsýn yfir ferlið í heild sinni, frá hugmynd að fullbúinni vöru. Ferðalagið verður skrásett og svo endurtekið í lok námskeiðsins til samanburðar.

Stofnun fyrirtækja (6 stundir)

 Kenndur er arðsemisútreikningur, fjallað er um ávöxtunarkröfur og aðferðir við að meta virði verðbréfa og fjárfestinga. Farið er í áætlunargerð fyrirtækja, greiðslu- og rekstraráætlanir og áætlaðan efnahag í árslok. Mikil áhersla er lögð á verklegar æfingar.

Hagnýt markaðsfræði (42 stundir)

Með réttum markaðsgreiningum er hægt að skipuleggja flestar orustur áður en þær eru háðar og láta þannig keppinautana ekki koma sér að óvörum. Nauðsynlegt er að rannsaka innra og ytra umhverfi áður en farið er af stað. Það leiðir bæði í ljós hætturnar sem bera að varast og tækifærin sem bera að nýta. 
SVÓT greining - Byrjað er á að kenna nemendum svokallaða SVÓT greiningu, sem er innri greining fyrir fyrirtækið eða hugmyndina. Það er greining á Styrkleikum, Veikleikum, Ógnunum og Tækifærum. 
Fimm afla greining  - Næst er nemendum kennd ytri greining eða fimm afla greining á markaðnum. Sú rannsókn varpar ljósi á helstu áhrifavalda  á markaðnum s.s. keppinauta, neytendur, birgja og hvaða þröskulda nýr keppinautur þarf að yfirstíga áður en hann kemst inn á markaðinn.
STP og P´in fjögur   -  Farið er í gegnum STP (e. segmentation – targeting – positioning) og hvernig það tengist við hin fjórum P´um í markaðsfræðinni (e. product – price – promotion – place).
Með tilliti til fyrri niðurstaðna þarf að finna réttu markhópana og einkenni þeirra.  Er markhópurinn fólk, fyrirtæki eða stofnanir. Hvaða vandamál á varan að leysa. Hvaða þætti á að einblína á við markaðssetningu vörunnar, verð, gæði, magn, ímynd og hvernig tengist það markhópnum.
Markaðssamskipti  -  Þegar búið er að greina markhópinn og ákveða hvað á að bjóða honum, á hvaða forsendum, á hvaða verði, í hvernig umbúðum og í hvaða magni, þarf að ákveða hvar, hvenær og hvernig á að nálgast hann.
Markaðssamskipti ganga út á að koma réttum skilaboðum til réttra hópa, nota til þess réttar boðleiðir og greiða fyrir það rétt verð.

Excel við áætlanagerð (24 stundir)

 Excel er öflugasta verkfærið sem völ er á við áætlanagerð.  Kennd verður uppsetning áætlanna frá grunni með þeim formúlum og föllum sem til þarf til að gera nauðsynlegar fjárhags- og kostnaðaráætlanir.  Einnig  fá nemendur til afnotar tilbúin rekstrar- og hugmyndalíkön.
Gert er ráð fyrir því að nemendur hafi undirstöðuþekkingu í Excel töflureikninum. Ef hana skortir getur nemandi fengið 50% afslátt af stöku Excelnámskeiði hjá NTV.

Fjármálastjórnun og framlegð (30 stundir)

 Í þessum hluta námsins er kenndur er arðsemisútreikningur og aðferðir til að ná fram hámörkun hagnaðar við mismunandi skilyrði. Fjallað er um framleiðslu, framboð, eftirspurn og arðsemi ásamt jafnvægisgreiningu og annara útreikninga með tilliti til ýmissa kostnaðarþátta.
Skoðaðar verða forsendur ávöxtunarkrafna og kynntar aðferðir við að meta núvirði, framvirði og afskriftir mismunandi fjárfestinga.
Farið er ítarlega yfir áætlunargerð fyrirtækja, greiðslu- og rekstraráætlanir til að geta framreiknað áætlaðan efnahag í árslok. Mikil áhersla er lögð á verklegar æfingar.

Hagnýtur bókhaldsskilningur (12 stundir)

 Í þessum hluta námskeisins er nemendum kennt að lesa út úr bókhaldsgögnum þær upplýsingar sem þarf, til að átta sig á hver staða fyrirtækja er. Lykilatriði eru útskýrð og tengd við þá aðferðarfræði sem notuð er til að meta styrk- og veikleika fyrirtækja. Eftir þennan hluta á nemandi m.a. að geta lesið úr ársreikningum fyrirtækja þær upplýsingar sem skipta meginmáli.

Gerð viðskiptaáætlunar (48 stundir)

 Viðskiptaáætlunin er afrakstur allra annara námsgreina í þessu námi. Þar munu nemendur sýna fram á að þeir geri sér grein fyrir markaðsmálum, stofnkostnaði, rekstrarfjárþörf auk fjölda annara þátta, og geti með þekkingu sinni ásamt þeim verkfærum sem þeim eru færð á námstímanum, áætlað arðsemi þess að ráðast í framkvæmd hugmynda sinna. 
Viðskiptaáætlun er greinargerð þar sem öllum upplýsingum er komið skipulega á einn stað. Þannig er auðveldlega hægt að gera sér grein fyrir hvaða leiðir er vænlegar og hvað þarf til að gera viðskiptahugmyndir að veruleika.

Náminu lýkur á kynningu áætlanna.

Samstarf við Capacent Ráðningar

NTV er í samstarfi við Capacent Ráðningar í þeim tilgangi að auka líkur á að árangur náist hjá þeim nemendum í starfsnámi sem eru að leita eftir nýju starfi að námi loknu. Ráðgjafar frá Capacent koma og halda kynningar um það hvernig nemendur eigi að bera sig að varðandi umsóknarferli, ferilskrá og ráðningarviðtöl. Vefur Capacent er á slóðinni http://www.capacent.is

Skráning á námskeið | prenta síðu

Nýi tölvu- og viðskiptaskólinn | Hlíðasmára 9 | 201 Kópavogur | Sími 544 4500 | Fax 544 4501 | ntv@ntv.is