Nýi tölvu- og viðskiptaskólinn
prenta síðu | Skráning á námskeið | Skráning í próf | Staðsetning skólans
tölvunám veldu: starfsnám og brautir grafík og margmiðlun sérfræði námsbrautir sérfræði námskeið bókhaldsnám Ýmis námskeið     viðskiptanám
Nýi tölvu- og viðskiptaskólinn
Nýi tölvu- og viðskiptaskólinn | Hlíðasmára 9 | 201 Kópavogur | Sími 544 4500 | Fax 544 4501 | ntv@ntv.is
@ forsíða > Sérfræði námsbrautir > Kerfisumsjón  

Kerfisumsjón

Almennar upplýsingar

Lengd námskeiðs: 180 kennslustundir.
Einingar til stúdentsprófs: 8
Staðgreiðsluverð: 249.000 kr. (Allar námsbækur eru innifaldar í verðinu m.a. tvær bækur á ensku. Einnig er frá og með haustönn 2009 innifalið alþjóðlegt próf sem gefur gráðuna: Microsoft Certified Technology Specialist.  Þetta próf, sem kostar um 30.000 er það sem þeir fá aukalega sem skrá sig í Kerfisumsjón.
Kjör fyrir atvinnulausa: 186.750 kr. (25% afsláttur) - geta einnig sótt um 70.000 kr. styrk hjá VMST.
Inntökuskilyrði: Nemendur þurfa að kunna skil á notendaumhverfi Windows stýrikerfisins og geta lesið ensku, þar sem stór hluti námsefnis er á ensku. Reynsla af rekstri tölvukerfa er ekki nauðsynleg.
Annað: Flest stéttarfélög styrkja félagsmenn til náms hjá NTV. Boðið er upp á VISA eða MasterCard lán.

Kvöld- og helgarnámskeið (haust 2010):

Námskeiðið hefst: Fyrri hl. (tölvuviðgerðir) 16. ág./Seinni hl. (MCTS & netw+) 19.sep.
Námskeiði lýkur: Fyrri hl. (tölvuviðgerðir) 11. sep./Seinni hl. (MCTS & netw+) 23. okt.
Kennsludagar og tími: Kennt er á þriðjudags- og fimmtudagskvöldum kl. 18 - 22 og á laugardagsmorgnum kl. 8:30 - 12:30.

Kvöld- og helgarnámskeið (haust 2010):

Námskeiðið hefst: Fyrri hl. (tölvuviðgerðir) 28. sep./Seinni hl. (MCTS & netw+)25.okt.
Námskeiði lýkur: Fyrri hl. (tölvuviðgerðir) 23. okt./Seinni hl. (MCTS & netw+) 4. des.
Kennsludagar og tími: Kennt er á þriðjudags- og fimmtudagskvöldum kl. 18 - 22 og á laugardagsmorgnum kl. 8:30 - 12:30.

Morgunnámskeið 1 (haust 2010):

Námskeið hefst: Fyrri hl. (tölvuviðgerðir) 17. ág./Seinni hl.(MCTS & netw+) 14. sep.
Námskeiði lýkur: Fyrri hl. (tölvuviðgerðir) 10 sep./Seinni hl. (MCTS & netw+) 22. okt.
Kennsludagar og tími: Kennt á þriðjudögum og fimmtudögum kl. 08:30 - 12:30 og á föstudögum kl. 13 -17.

Morgunnámskeið 2 (haust 2010):

Námskeið hefst: Fyrri hl. (tölvuviðgerðir) 26. okt./Seinni hl.(MCTS & netw+) 23. nóv.
Námskeiði lýkur: Fyrri hl. (tölvuviðgerðir) 19 nóv./Seinni hl. (MCTS & netw+) 13. jan. 2011 (frí frá 22. des til 3. jan)
Kennsludagar og tími: Kennt á þriðjudögum og fimmtudögum kl. 08:30 - 12:30 og á föstudögum kl. 13 -17.

Um námskeiðið:

Nám fyrir þá sem vilja hasla sér völl sem kerfisumsjónarmenn hjá minni fyrirtækjum og stofnunum. Nemendur öðlast víðtækan skilning á uppsetningu netkerfa, viðgerðum og bilanagreiningu á almennum vélbúnaði og uppsetningu stýrikerfa.

Námið samanstendur bæði af kennslu og verklegum æfingum. Mest er um verklegar æfingar í sérútbúinni viðgerðarstofu. Allar kennslugreinar eru kenndar frá grunni og er rétt að gera ráð fyrir nokkurri heimavinnu. Neðst á síðunni er að finna nánari lýsingu á einstökum námsgreinum.

Helstu námsgreinar eru:

Tölvuviðgerðir (72 stundir)

Verklegur undirbúningur fyrir A+ gráðuna. Eftir þennan hluta eiga nemendur að vera í stakk búnir til að uppfæra, bilanagreina og gera við tölvubúnað, ásamt því að setja upp viðeigandi stýrikerfi og koma tölvu í netsamband. Kennsla fer fram í nýrri og fullkominni tölvuviðgerðastofu.

Netkerfi og rekstur stýrikerfa (24 stundir)

Farið er í helstu atriði netkerfa s.s. TCP/IP protocol - Subnet - Topology´s - Hubbar, Switchar, Router, Bridge - PeerToPeer vs/ Client Server.
Auk þess verður farið í eftirfarandi atriði: Öryggi, vírusvarnir, afritataka - Réttindi (Permissions, Policies) - Hjálpartól. (Ghost (Speglun), Zip ofl.).

MCTS Windows Configuration (72 stundir)

Kennd er uppsetning á Windows stýrikerfinu ásamt uppsetningu á prenturum og öðrum jaðartækjum. Nemendur öðlist viðtækan skilning á netkerfum og geti leyst vandamál sem að þeim snúa. Stuðst er við viðukennt Microsoft námsefni (MOC Microsoft Official Curriclium)

Windows 2008 server (12 stundir)

Á þessum hluta námskeiðsins kynnast nemendur uppsetningum, rekstri og vandamálagreiningum á Windows 2008 Server, bæði stand-alone og sem hluti af workgroup eða domain.

Samstarf við Talent Ráðningar

NTV hefur hafið samstarf við Talent Ráðningar. Ráðgjafar frá Talent Ráðningum koma og spjalla við þá nemendur sem eru í tölvu- og tækninámi í NTV. Farið er yfir hvernig er best að bera sig að við atvinnuleit, gerð ferilskrár og fl. Mikil eftirspurn er eftir tölvu- og tæknifólki í dag en Talent Ráðningar sérhæfa sig í tækni- og sérfræðistörfum. Heimasíða Talent er www.talent.is

 

Skráning á námskeið | prenta síðu

Nýi tölvu- og viðskiptaskólinn | Hlíðasmára 9 | 201 Kópavogur | Sími 544 4500 | Fax 544 4501 | ntv@ntv.is