| veldu: | starfsnám og brautir | grafík og margmiđlun | sérfrćđi námsbrautir | sérfrćđi námskeiđ | bókhaldsnám | Ýmis námskeiđ |

| Afslćttir og styrkir til atvinnulausra |
| Áfangar - einingar |
| Greiđslukjör |
| Hvađ er ECDL ? |
| Námsvísir NTV (PDF) |
| Prófmiđstöđ |
| QuickTjek |
| Stefna NTV |
| Sveigjanleiki í námi |
| Um NTV |
| Póstlisti | ||
Lengd námskeiðs: 258 kennslustundir.
Einingar til stúdentsprófs: 13
Staðgreiðsluverð: 199.000 (Allar námsbækur eru innifaldar í verði).
Kjör fyrir atvinnulausa: 149.250 kr. (25% afsláttur) - geta einnig sótt um 70.000 kr. styrk hjá VMST.
Inntökuskilyrði: Nemendur þurfa að hafa lokið grunnskólaprófi og vera orðnir 18 ára.
Annað: Flest stéttarfélög styrkja félagsmenn til náms hjá NTV. Boðið er upp á VISA eða MasterCard lán.
Námskeið hefst: 14. sept.
Námskeiði lýkur: 16. des..
Kennsludagar og tími: Kennt er á þriðjudags- og fimmtudagskvöldum 18:00 - 22:00 og laugardagsmorgnum 08:30 - 12:30.
Morgunnámskeið:
Námskeið hefst: 13. sept.
Námskeiði lýkur: 15. des.
Kennsludagar og tími: Kennt er þrjá daga í viku (mánudaga, miðvikudaga og föstudaga) kl. 8:30 til 12:30.
Almennt skrifstofu- og tölvunám sem hentar öllum sem annað hvort eru á leið út á vinnumarkaðinn, oft eftir nokkurra ára hlé, eða vilja styrkja stöðu sína í starfi. Þetta nám er mjög markvisst og einstakt fyrir það hversu rík áhersla er lögð á að styrkja einstaklinginn og gera hann hæfari að takast á við krefjandi störf á vinnumarkaðnum.
Meðal kennslugreina eru bókhald, tölvubókhald, verslunarreikningur, Word ritvinnsla, Excel töflureiknir, streitustjórnun, gerð kynningarefnis og margt fleira. Í tölvufögunum eru tekin alþjóðleg ECDL próf og fá nemendur alþjóðlegt prófskírteini sem gefið er út af Skýrslutæknifélagi Íslands
Námið samanstendur bæði af kennslu og verklegum æfingum og eru próf í helstu greinum. Allar kennslugreinar eru kenndar frá grunni og er rétt að gera ráð fyrir nokkurri heimavinnu.
Kennd er undirstaða bókhalds þar sem helstu reikningar eru teknir fyrir og verkefni færð í dagbók. Kennd er afstemming með prófjöfnuði ásamt reikningsjöfnuði og gerð efnahags- og rekstrarreiknings. Mikið er um verklegar æfingar.
Kennd er uppbygging bókhaldslykla, merking fylgiskjala, notkun bókunarbeiðna, hvernig færslur eru skráðar, afstemmingar þ.m.t., hvernig stemmt er af við bankayfirlit. Farið er yfir færslur fyrir nokkra mánuði með tilheyrandi uppgjöri og útskriftum fyrir hvern mánuð. Einnig er kennt á launabókhald. Kennt er á viðskiptahugbúnaðinn Navision Attain sem er eitt mest notaða bókhaldsforrit á markaðnum í dag.
Kenndur er sá hluti af stærðfræðinni sem mest er notaður í almennri skrifstofuvinnu, s.s. Prósentureikningur, afsláttur og álagning, samsettur prósentureikningur, útreikningur marktölu (vísitala), útreikningur á vörureikningi og skyndiuppgjör vörureiknings, útreikningur á veltuhraða, vaxtareikningur, samsettir vextir, framlegðar- og framlagsútreikningur. Mikið af verklegum æfingum.
Farið er í uppbyggingu tölvunnar og grunnatriði Windows stýrikerfisins og sérstök áhersla lögð á þá þætti sem tengjast almennri notkun, s.s. Afritun og vistun gagna, stjórnun útprentunar o.fl. (Próf)
Kennt er hvernig nota má þá möguleika sem Internetið býður upp á. M.a. Er kennd notkun á tölvupósti og hvernig ferðast má um veraldarvefinn.
Farið er yfir allar helstu aðgerðir sem ritvinnsluforritið býður upp á við ritun, leiðréttingar og formun texta, leturgerðir, flutning, afritun, vistun og útprentun. Mikið um verklegar æfingar.
Farið er yfir grunnuppbyggingu töflureiknisins. Kennd er uppbygging á reiknilíkönum og helstu aðgerðir við útreikninga og útlitshönnun á töflum. Einnig er kennt hvernig má breyta töflum yfir í myndrænt form, s.s. Súlu- eða kökurit og margt fleira.
Kennt er hvernig má útbúa skemmtilegar kynningar (glærur) með PowerPoint forritinu sem er hluti af Microsoft Office kerfinu.
Skoðum hér hvaða þýðingu hnitmiðuð samskipti hafa í bæði starfi og einkalífi, og ekki síður hvaða áhrif samskiptin við okkur sjálf hafa á líf og líðan. Leitumst einnig við að svara: Hvernig höndlum við best erfið samskipti? Auk þess lærum við að þekkja merki streitu og árangursríkar aðferðir skoðaðar við að vinna sig út úr því á sem stystum tíma. Skoðum hugtök eins og stress, áhyggjur, kvíða, þunglyndi o.þ.h. Og skoðum hvernig slík ferli eru stöðvuð.
Farið er í helstu þætti tímastjórnunar og mikilvægi þess að setja sér raunhæf markmið og ná þeim.
Outlook forritið er notað til samskipta með tölvupósti, til að bóka fundi, halda utanum verkefni, til tímastjórnunar og til að skrá og viðhalda upplýsingum um tengiliði og samskiptum við þá. Einnig er í Outlook öflugt dagbókar- og minnismiðakerfi.
Kennd eru lykilatriði hvað varðar framkomu og tækni við að koma fram og halda kynningar.
Það er samróma álit allra sem fara í þetta nám að þetta sé í senn skemmtilegasti og erfiðasti hluti námsins. Nemendum er skipt niður í fjögurra manna hópa og eiga þeir að finna vöru eða þjónustu sem þeir markaðsetja. Verkefnið tekur á öllum þáttum námskeiðsins þar sem það er sett upp í Word, birtingar- og kostnaðaráætlanir eru unnar í Excel og á síðasta degi námskeiðsins heldur hver hópur „sölukynningu“ sem gerð er í Power Point.
NTV er í samstarfi við Capacent Ráðningar í þeim tilgangi að auka líkur á að árangur náist hjá þeim nemendum í starfsnámi sem eru að leita eftir nýju starfi að námi loknu. Ráðgjafar frá Capacent koma og halda kynningar um það hvernig nemendur eigi að bera sig að varðandi umsóknarferli, ferilskrá og ráðningarviðtöl. Vefur Capacent er á slóðinni http://www.capacent.is