| veldu: | starfsnám og brautir | grafík og margmiđlun | sérfrćđi námsbrautir | sérfrćđi námskeiđ | bókhaldsnám | Ýmis námskeiđ |

| Afslćttir og styrkir til atvinnulausra |
| Áfangar - einingar |
| Greiđslukjör |
| Hvađ er ECDL ? |
| Námsvísir NTV (PDF) |
| Prófmiđstöđ |
| QuickTjek |
| Stefna NTV |
| Sveigjanleiki í námi |
| Um NTV |
| Póstlisti | ||
Lengd námskeiðs: 264 kennslustundir.
Einingar til stúdentsprófs: 10
Staðgreiðsluverð: 229.000 (Allar námsbækur eru innifaldar í verði).
Kjör fyrir atvinnulausa: 171.750 kr (25% afsláttur) - geta einnig sótt um 70.000 kr. styrk hjá VMST.
Inntökuskilyrði: Nemendur þurfa að hafa lokið grunnskólaprófi og vera orðnir 18 ára.
Annað: Flest stéttarfélög styrkja félagsmenn til náms hjá NTV.
Boðið er upp á VISA eða MasterCard lán.
Námskeið hefst: 14. sept.
Námskeiði lýkur: 16. des.
Kennsludagar og tími: Kennt er á þriðjudags- og fimmtudagskvöldum 18:00 - 22:00 og laugardagsmorgnum 08:30 - 12:30.
Námskeið hefst: 13. sept.
Námskeiði lýkur: 17. des.
Kennsludagar og tími: Kennt er á mánudags,- miðvikudags- og föstudagsmorgnum 8:30 til 12:30.
Við bjóðum upp á líflegt og fjölbreytt nám fyrir þá sem vilja tileinka sér sérþekkingu á sölu- og markaðsmálum, stofna eigið fyrirtæki eða vilja einfaldlega styrkja sig í starfi. Í náminu er farið í hlutverk sölumannsins, samskipti við viðskiptavini, gerð sölu- og markaðsáætlana, gerð kynningarefnis o.s.frv. en náminu lýkur með umfangsmiklu lokaverkefni.
Námið samanstendur bæði af kennslu og verklegum æfingum og eru próf í helstu námsgreinum. Rétt er að gera ráð fyrir nokkurri heimavinnu.
Skilgreind eru helstu hlutverk og ábyrgð í sölustarfi. Farið er yfir söluferilinn og hvaða þættir skipta mestu máli í samskiptum sölumanna og viðskiptavina. Kennd er skipulagning og forgangsröð söluaðgerða og hvernig hægt er að læra að þekkja viðskiptavininn.
Farið er í uppbyggingu tölvunnar og grunnatriði Windows stýrikerfisins. Lögð er áhersla á þætti sem tengjast almennri meðhöndlun gagna, s.s. afritun, vistun, stjórnun útprentunar o.fl. Kennd er notkun Internetsins (vefsins) og hvernig hægt er að nýta sér það sem verkfæri í sölustarfi.
Hnitmiðuð og góð samskipti eru undirstaða allra viðskipta. Taktu eftir þörfum viðskiptavinar fljótt og vel. Leitumst við að svara: Hvernig náum við fljótt góðu sambandi við viðmælanda? Hvernig berum við okkur að í erfiðum samskiptum?
Farið er m.a. í uppsetningu og skráningu viðskiptavina, móttöku pantana, reikningsútskrift, vaxtaútreikning, aldursgreiningu skulda, innheimtubréf, innborganir og margvíslega skýrslugerð.
Farið er yfir þann hluta stærðfræðinnar sem mest er notaður í almennu sölustarfi, s.s. prósentu- og vaxtareikning, afslátt, álagningu, útreikning á marktölu (vísitölu) veltuhraða ásamt framlegðarútreikningi við vörusölu. Mikið er um verklegar æfingar og lýkur þessum þætti námsins með prófverkefni.
Farið er yfir helstu aðgerðir sem ritvinnsluforritið býður upp á og hvernig nota má þennan hugbúnað við gerð sölutilboða. Farið er yfir helstu aðgerðir s.s. ritun, leiðréttingar, formun texta, leturgerðir, flutning, afritun, vistun gagna og útprentun. Nemendur æfa sig við gerð tilboða og lýkur þessum hluta námskeiðsins með prófverkefni.
Farið er í grunnþætti markaðsfræðinnar og söluferilsins, undirbúning söluaðgerða og hvernig hægt er að nýta tímann sem best við að ná árangri. Nemendur læra aðferðir við söluleit og hvernig hægt er að nálgast viðskiptavininn. Farið er yfir þá þætti sem tengjast stjórnun og yfirsýn söluverkefna og hvernig hægt er að setja sér sölumarkmið. Þessum þætti námsins lýkur með prófverkefni.
Farið er yfir uppbyggingu töflureiknisins ásamt helstu aðgerðum við útreikninga og útlitshönnun á töflum. Kennt er hvernig má breyta töflum í myndrænt form, s.s. súlu- eða kökurit og hvernig má nota þetta verkfæri við gerð verðlista, söluáætlana o.fl. Þessum hluta námskeiðsins lýkur með prófverkefni.
Kennd eru grundvallaratriði í sölutækni og söluhringurinn tekinn fyrir. Farið er í þá þætti sem einkenna góðan sölumann, kauphegðun viðskiptavina og manngerðir kaupandans. Nemendur læra að þekkja söluferilinn og mismunandi aðferðir við að loka sölunni. Einnig er farið í framsögn og hvernig hægt er að gera kynningar áhrifaríkar og skilvirkar. Verkefni unnin í hópstarfi.
Farið er í helstu þætti tímastjórnunar og mikilvægi þess að setja sér raunhæf markmið og ná þeim.
Kennt er hvernig nota má hugbúnaðinn Power Point til að útbúa sölukynningar, glærur og annað kynningarefni á vörum og þjónustu sem verið er að selja.
Kennd eru lykilatriði hvað varðar framkomu og tækni við að koma fram og halda kynningar.
Kynnt eru undirstöðuatriði við gerð auglýsinga og mismunandi gerð kynningarefnis. Kynntar eru mismunandi boðleiðir út á markaðinn, farið í greiningu markhópa, leturgerðir, almenna skynsemi og fleiri hluti sem skipta máli við gerð og hönnun kynningarefnis.
Farið er í tilgang og markmið markaðsrannsókna, hvar þær eiga við og hvar ekki. Einnig er farið í gegn um uppbyggingu þeirra. Ein netrannsókn er unnin frá upphafi til enda, ásamt öðrum verkefnum.
Í þessum seinni hluta markaðsfræðinnar er farið í þá þætti sem snerta markaðsetningu á þjónustu þ.e. hvernig það er frábrugðið markaðssetningu á áþreifanlegri vöru. Einnig er farið í hvernig staðið er að markaðssetningu á Internetinu, hvað ber að forðast og hvaða þættir það eru sem leggja þurfi sérstaka áherslu á.
Kennd eru grunnatriði í Publisher til að setja saman bæklinga, nafnspjöld og fl.
Ýtarlega er farið í gegnum þá þætti sem snerta markaðsrannsóknir, forvinnu og vinnslu á ítarlegri rannsókn, tölfræði við úrvinnslu og skekkjumörk. Unnið er með flóknari rannsóknartæki (hugbúnað). Jafnframt er farið í nauðsyn skýrslugerðar.
Nemendur leysa verkefni í hópvinnu. Gefin er prófeinkunn fyrir framsetningu, sölu- og kynningartækni, spurningatækni og lokaniðurstöðu.
NTV er í samstarfi við Capacent Ráðningar í þeim tilgangi að auka líkur á að árangur náist hjá þeim nemendum í starfsnámi sem eru að leita eftir nýju starfi að námi loknu. Ráðgjafar frá Capacent koma og halda kynningar um það hvernig nemendur eigi að bera sig að varðandi umsóknarferli, ferilskrá og ráðningarviðtöl. Vefur Capacent er á slóðinni http://www.capacent.is