Nýi tölvu- og viđskiptaskólinn
prenta síðu | Skráning á námskeiđ | Skráning í próf | Stađsetning skólans
tölvunám veldu: starfsnám og brautir grafík og margmiđlun sérfrćđi námsbrautir sérfrćđi námskeiđ bókhaldsnám Ýmis námskeiđ     viđskiptanám
Nýi tölvu- og viđskiptaskólinn
Nýi tölvu- og viðskiptaskólinn | Hlíðasmára 9 | 201 Kópavogur | Sími 544 4500 | Fax 544 4501 | ntv@ntv.is
@ forsíða > Starfsnám og brautir > Skrifstofunám og hönnun  

Skrifstofunám og Hönnun

Almennar upplýsingar

Lengd námskeiðs: Tveggja anna nám - samtals 414 kennslustundir.
Einingar til stúdentsprófs: 19
Staðgreiðsluverð: 356.000 kr. (Allar námsbækur eru innifaldar í verði).
Kjör fyrir atvinnulausa: 267.000 kr (25% afsláttur) - geta einnig sótt um 70.000 kr. styrk hjá VMST.
Inntökuskilyrði: Nemendur þurfa að hafa lokið grunnskólaprófi og vera orðnir 18 ára. Enskukunnátta er einnig nauðsynleg þar sem kennslubækur eru á ensku í seinni hluta námsins.
Annað: Flest stéttarfélög styrkja félagsmenn til náms hjá NTV Boðið er upp á VISA eða MasterCard lán.

Næstu námskeið:

Kvöld- og helgarnámskeið:

Fyrri önn hefst: 14. sept..
Fyrri önn lýkur: 16. des.
Kennsludagar og tími: Kennt er á þriðjudags- og fimmtudagskvöldum 18:00 - 22:00 og laugardagsmorgnum 08:30 - 12:30.
Á seinni önninni (vorið 2011) er mögulegt að velja á milli kvöld- eða síðdegisnámskeiðs.

Morgunnámskeið:

Fyrri önn hefst: 13. sept.
Fyrri önn lýkur: 15. des.
Kennsludagar og tími: Á fyrri önninni er kennt 3 daga í viku (mánudaga, miðvikudaga og föstudaga kl. 8:30 - 12:30.  Á seinni önninni (vorið 2011) er mögulegt að velja á milli kvöld eða síðdegisnámskeiðs.

Um námskeiðið:

Þetta nám þjálfar nemendur til starfa á nútímaskrifstofu. Auk þess að undirbúa nemendur til starfa við almenn skrifstofustörf er lögð áhersla á að gera nemendur færa um að útbúa hvers konar kynningarefni og vera tengiliður fyrirtækis við auglýsingastofur, fjölmiðla og prentsmiðjur. Tekin eru saman tvö stór námskeið sem styðja mjög vel hvort annað, þ.e. Skrifstofu- og tölvunám og Grafísk hönnun. Flestum námsgreinum lýkur með prófi en auk þess er gefin einkunn fyrir lokaverkefni og mætingar.
Í tölvufögunum eru tekin alþjóðleg ECDL próf og fá nemendur alþjóðlegt prófskírteini sem gefið er út af Skýrslutæknifélagi Íslands.
Á seinni önninni er lögð áhersla á að gera nemendur færa um að hanna og útbúa hvers konar kynningarefni með því að læra grundvallarvinnubrögð dreifibréfa- og bæklingagerðar allt frá myndatöku að prentun og skila hugmyndinni frá sér með aðstoð algengustu forrita. Hér er höfuðáherslan lögð á kynningu á vöru eða þjónustu. Með þessu opnast nýir möguleikar hjá fyrirtækjum eða stofnunum sem hanna sitt eigið kynningarefni.
Námskeiði lýkur með viðurkenningarskjali og prófskírteini. Námið samanstendur bæði af kennslu og verklegum æfingum og eru próf í helstu greinum. Allar kennslugreinar eru kenndar frá grunni og er rétt að gera ráð fyrir nokkurri heimavinnu.

Skipting og lengd námsgreina:

Námsefni á fyrri önn:

  • Mannleg samskipti / streitustjórnun - 6 stundir
  • Bókhald - 36 stundir
  • Tölvubókhald - 54 stundir
  • Verslunarreikningur - 24 stundir
  • Tímastjórnun - 6 stundir
  • Windows stýrikerfið og Internetið - 18 stundir
  • Word ritvinnsla - 30 stundir
  • Excel töflureiknir - 30 stundir
  • Outlook samskiptakerfið - 6 stundir
  • Gerð kynningarefnis í PowerPoint - 12 stundir
  • Framkoma og framsögn - 6 stundir
  • Lokaverkefni - 30 stundir

Námsefni á seinni önn:

  • Mismunandi gerð kynningarefnis - 6 stundir
  • Adobe Illustrator - 42 kennslustundir
  • Adobe Photoshop og Imageready - 54 stundir
  • Meðhöndlun lita - 6 stundir
  • Meðferð leturgerða - 6 stundir
  • Uppsetning prentgripa - 6 stundir
  • Samskipti við fjölmiðla og prentsmiðjur - 18 stundir
  • Lokaverkefni II- 18 stundir

Helstu námsgreinar:

Bókhald (36 stundir)

Kennd er undirstaða bókhalds þar sem helstu reikningar eru teknir fyrir og verkefni færð í dagbók. Kennd er afstemming með prófjöfnuði ásamt reikningsjöfnuði og gerð efnahags- og rekstrarreiknings. Mikið er um verklegar æfingar.

Tölvubókhald (54 stundir)

Kennd er uppbygging bókhaldslykla, merking fylgiskjala, notkun bókunarbeiðna, hvernig færslur eru skráðar, afstemmingar þ.m.t., hvernig stemmt er af við bankayfirlit. Farið er yfir færslur fyrir nokkra mánuði með tilheyrandi uppgjöri og útskriftum fyrir hvern mánuð. Einnig er kennt á launabókhald. Kennt er á viðskiptahugbúnaðinn Navision Attain sem er eitt mest notaða bókhaldsforrit á markaðnum í dag.

Verslunarreikningur (24 stundir)

Kenndur er sá hluti af stærðfræðinni sem mest er notaður í almennri skrifstofuvinnu, s.s. prósentureikningur, afsláttur og álagning, samsettur prósentureikningur, útreikningur marktölu (vísitala), útreikningur á vörureikningi og skyndiuppgjör vörureiknings, útreikningur á veltuhraða, vaxtareikningur, samsettir vextir, framlegðar- og framlagsútreikningur. Mikið af verklegum æfingum.

Windows stýrikerfið og Internetið (18 stundir)

Farið er í uppbyggingu tölvunnar og grunnatriði Windows stýrikerfisins og sérstök áhersla lögð á þá þætti sem tengjast almennri notkun, s.s. afritun og vistun gagna, stjórnun útprentunar o.fl. (Próf)
Kennt er hvernig nota má þá möguleika sem Internetið býður upp á. M.a. er kennd notkun á tölvupósti og hvernig ferðast má um veraldarvefinn.

Word ritvinnsla (30 stundir)

Farið er yfir allar helstu aðgerðir sem ritvinnsluforritið býður upp á við ritun, leiðréttingar og formun texta, leturgerðir, flutning, afritun, vistun og útprentun. Mikið um verklegar æfingar.

Excel töflureiknir (24 stundir)

Farið er yfir grunnuppbyggingu töflureiknisins. Kennd er uppbygging á reiknilíkönum og helstu aðgerðir við útreikninga og útlitshönnun á töflum. Einnig er kennt hvernig má breyta töflum yfir í myndrænt form, s.s. súlu- eða kökurit og margt fleira.

PowerPoint gerð kynningarefnis (12 stundir)

Kennt er hvernig má útbúa skemmtilegar kynningar (glærur) með PowerPoint forritinu sem er hluti af Microsoft Office kerfinu.

Mannleg samskipti og streitustjórnun (6 stundir)

Skoðum hér hvaða þýðingu hnitmiðuð samskipti hafa í bæði starfi og einkalífi, og ekki síður hvaða áhrif samskiptin við okkur sjálf hafa á líf og líðan. Leitumst einnig við að svara: Hvernig höndlum við best erfið samskipti? Auk þess lærum við að þekkja merki streitu og árangursríkar aðferðir skoðaðar við að vinna sig út úr því á sem stystum tíma. Skoðum hugtök eins og stress, áhyggjur, kvíða, þunglyndi o.þ.h. og skoðum hvernig slík ferli eru stöðvuð.

Tímastjórnun (6 stundir)

Farið er í helstu þætti tímastjórnunar og mikilvægi þess að setja sér raunhæf markmið og ná þeim.

Outlook samskiptakerfið (12 stundir)

Outlook forritið er notað til samskipta með tölvupósti, til að bóka fundi, halda utanum verkefni, til tímastjórnunar og til að skrá og viðhalda upplýsingum um tengiliði og samskiptum við þá. Einnig er í Outlook öflugt dagbókar- og minnismiðakerfi.

Framkoma og framsögn (6 stundir)

Kennd eru lykilatriði hvað varðar framkomu og tækni við að koma fram og halda kynningar.

Lokaverkefni (30 stundir)

Það er samróma álit allra sem fara í þetta nám að þetta sé í senn skemmtilegasti og erfiðasti hluti námsins. Nemendum er skipt niður í fjögurra manna hópa og eiga þeir að finna vöru eða þjónustu sem þeir markaðsetja. Verkefnið tekur á öllum þáttum námskeiðsins þar sem það er sett upp í Word, birtingar- og kostnaðaráætlanir eru unnar í Excel og á síðasta degi námskeiðsins heldur hver hópur „sölukynningu“ sem gerð er í Power Point.

Mismunandi gerð kynningarefnis (6 stundir)

Farið er í yfirferð námskeiðsins og verkferlið rakið frá hugmynd að fullunnu verki. Kynntir eru helstu boðmiðlar og boðleiðir út á markaðinn. Svarað er spurningum s.s. hvað er ímynd fyrirtækis og hvernig er hún endurspegluð og styrkt með auglýsingum. Hvað er kauphegðun og hvaða áhrif hafa auglýsingar á kauphegðun neitandans. Hvað er gert á auglýsingastofu og margt fleira.

Adobe Illustrator (42 stundir)

Kennt er á Illustrator teikniforritið sem er eitt mest notaða teikniforritið á Íslandi í dag. Lögð er áhersla á að nemendur læri að tileinka sér þær aðferðir sem þarf til að koma góðri hugmynd á tölvutækt form. Mikið er um að nemendur vinna raunveruleg verkefni, s.s. auglýsingar, umbúðir, lógó, stansverkefni og fleira þar sem forritið er notað til hins ítrasta.

Photoshop og Imageready (54 stundir)

Farið er í allar helstu aðgerðir forritsins. Kennd er uppbygging ljósmynda, mun á vectormyndum og punktamyndum, upplausn, litadýpt, skjáupplausn og helstu atriði í sambandi við innskönnun. Nemendur læra að vinna með lagskiptar myndir, blanda saman myndum, laga myndir og hreyfiauglýsingar fyrir netið.

Meðhöndlun lita (6 stundir)

Kenndar eru algengustu aðferðir litablöndunar, val lita út frá markhópum og litun svart/hvítra. Farið er í helstu kerfi litaflokkunar (RGB - CMYK - lab - HSB o.fl.) og litvinnslu í Photoshop og Illustrator.

Meðferð leturgerða (6 stundir)

Farið er í notkun á Adobe Type Manager og sýnt hvernig halda á utan um leturgerðir. Við skoðum mismuninn á TrueType og Postscript letrum og hvernig mismunandi letur geta hentað í verkefni.

Uppsetning prentgripa (6 stundir)

Farið verður í uppbyggingu auglýsinga, bæklinga og annars prentaðs efnis. Skoðuð verða mismunandi brot, pappírsstærðir, pappírsgerðir, prentlitir og hvernig vinnureglur og skipulag geta sparað tíma og fyrirhöfn.

Samskipti við fjölmiðla og prentsmiðjur (18 stundir)

Í þessum hluta námskeiðsins er farið í þrjár heimsóknir. Farið er í prentsmiðju og verkferli prentsmiðjunnar er skoðað. Dagblaðsútgáfa er skoðuð þar sem gæðastjóri blaðsins fer í mikilvægi þess að vanda frágang auglýsinga hvort sem er fyrir útgáfuna sjálfa eða aðrar prentsmiðjur, notkun litaprófíla í Photoshop og PDF-skrifun EPS skjala . Að lokum heimsækja nemendur fyrirtæki þar sem skoðaðir eru þeir möguleikar sem fyrir hendi eru þegar kemur að umhverfismerkingum.

Lokaverkefni II (24 stundir)

Í þessu lokaverkefni vinna nemendur kynningarpakka fyrir fyrirtæki sem samanstendur af:

  • Nafnspjöldum
  • Kveðjuspjöldum
  • Bréfsefni
  • Heilsíðuauglýsingu fyrir tímarit eða dagblað
  • 2 litlum auglýsingum sama efnis (kálfar)
  • 2 vefauglýsingum (GIF hreyfimyndum)

Lokaverkefnið er ekki eingöngu unnið í síðustu tímunum heldur er byrjað á því og það unnið af og til á meðan námskeiðinu stendur.

Samstarf við Capacent Ráðningar

NTV er í samstarfi við Capacent Ráðningar í þeim tilgangi að auka líkur á að árangur náist hjá þeim nemendum í starfsnámi sem eru að leita eftir nýju starfi að námi loknu. Ráðgjafar frá Capacent koma og halda kynningar um það hvernig nemendur eigi að bera sig að varðandi umsóknarferli, ferilskrá og ráðningarviðtöl. Vefur Capacent er á slóðinni http://www.capacent.is

Skráning á námskeið | prenta síðu

Nýi tölvu- og viðskiptaskólinn | Hlíðasmára 9 | 201 Kópavogur | Sími 544 4500 | Fax 544 4501 | ntv@ntv.is