Nýi tölvu- og viðskiptaskólinn
prenta síðu | Skráning á námskeið | Skráning í próf | Staðsetning skólans
tölvunám veldu: starfsnám og brautir grafík og margmiðlun sérfræði námsbrautir sérfræði námskeið bókhaldsnám Ýmis námskeið     viðskiptanám
Nýi tölvu- og viðskiptaskólinn
Nýi tölvu- og viðskiptaskólinn | Hlíðasmára 9 | 201 Kópavogur | Sími 544 4500 | Fax 544 4501 | ntv@ntv.is
@ forsíða > Aðrir tenglar > Stefna NTV  

Nýi tölvu- og viðskiptaskólinn stefnir að því :

  • Að vera í fararbroddi í endur- og símenntun á sviði upplýsingatækni og annara fagsviða sem tengjast þeim námsleiðum sem boðið er upp á og stuðla þannig að betri árangri viðskiptavina okkar.
  • Að vera í takt við tæknilegar nýjungar og gang mála í atvinnulífinu hverju sinni. Því leggjum við áherslu á stöðuga þróun á námsframboði, kennsluefni, kennsluhögum og nýjungum.
  • Að viðhalda þeirri áherslu að öll kennsla og þau verkefni sem lögð eru fyrir nemendur taki mið af raunverulegum verkferlum og aðstæðum.
  • Að viðhalda ferskleika og sveigjanleika í framleiðslu á eigin námsefni sem gerir það að verkum að kennarar skólans eru ætíð í takt við nýjungar. Segja má að allir starfsmenn skólans vinni saman að stöðugu viðhaldi á gæðum þess kennsluefnis sem notast er við.
  • Að gera vel við starfsfólk okkar með trúnað og fagmennsku í fararbroddi og viðhalda þannig traustri ímynd skólans útávið. NTV leggur mikla áherslu á að kennarar viðhaldi þekkingu sinni til að vera í takt við nýjungar og leggur til þess töluverða fjármuni.
  • Að halda áfram að vera í nánu sambandi við nemendur okkar og viðskiptavini, meðal annars með nafnlausum könnunum á því sem betur má fara bæði hvað varðar kennslu og aðstöðu. Þetta er okkar gæðaeftirlit.
  • Að halda áfram að þróa og hlúa betur að greiningu, ráðgjöf og kennslu á fyrirtækjamarkaði með því að sækja þekkingu og reynslu hérlendis sem og erlendis.

Skráning á námskeið | prenta síðu

Nýi tölvu- og viðskiptaskólinn | Hlíðasmára 9 | 201 Kópavogur | Sími 544 4500 | Fax 544 4501 | ntv@ntv.is