Nýi tölvu- og viđskiptaskólinn
prenta síðu | Skráning á námskeiđ | Skráning í próf | Stađsetning skólans
tölvunám veldu: starfsnám og brautir grafík og margmiđlun sérfrćđi námsbrautir sérfrćđi námskeiđ bókhaldsnám Ýmis námskeiđ     viđskiptanám
Nýi tölvu- og viđskiptaskólinn
Nýi tölvu- og viðskiptaskólinn | Hlíðasmára 9 | 201 Kópavogur | Sími 544 4500 | Fax 544 4501 | ntv@ntv.is
@ forsíða > Almennt tölvunám (ECDL)  

Almennt tölvunám (ECDL)

Almennar upplýsingar

Lengd námskeiðs: 78 kennslustundir
Einingar til stúdentsprófs: 3
Staðgreiðsluverð: 69.000 (Allar námsbækur og alþjóðleg próf eru innifaldin í verði).
Inntökuskilyrði: Námið hæfir fólki úr öllum starfsstéttum, fólki í atvinnuleit og aldurinn skiptir ekki máli. Námið er sniðið að þörfum byrjenda eða þeirra sem ekki hafa áður farið á slíkt námskeið.
Annað: Flest stéttarfélög styrkja félagsmenn til náms hjá NTV. Boðið er upp á VISA eða MasterCard lán.

Næstu námskeið:

Kvöldnámskeið:

Námskeið hefst:  30. okt.
Námskeiði lýkur:  7. des
Kennsludagar og tími: Kennt er á þriðjudags- og fimmtudagskvöldum 18:00 - 22:00 og á laugardagsmorgnum kl. 8:30 - 12:30. 

Morgunnámskeið:

Námskeið hefst: 29. okt.
Námskeiði lýkur: 7. des.
Kennsludagar og tími: Kennt er á mánudögum, miðvikudögum og föstudögum kl. 8:30 - 12:30.

Einnig er hægt að taka einstakar námsgreinar ef sæti eru laus.

Um námskeiðið:

Markmið námskeiðsins er að kenna almenna tölvunotkun fyrir byrjendur eða þá sem ekki hafa farið á námskeið áður. Í lok námskeiðsins gefst nemendum tækifæri á að öðlast alþjóðlegt “Tölvuökuskírteini” – European Computer Driving License (ECDL) útgefið af Skýrslutæknifélagi Íslands. NTV skólarnir eru viðurkennd prófmiðstöð sem undirbýr nemendur ef þeir óska eftir að öðlast þessa viðurkenningu.
Námið byggir bæði á kennslu og verkefnum og er hagnýtur kostur fyrir þá sem vilja fá innsýn í notagildi PC tölvunnar og geti þannig betur nýtt sér tölvutæknina, jafnt á vinnustað sem heima. Allar kennslugreinar eru kenndar frá grunni.

Helstu námsgreinar

Grunnatriði upplýsingatækni (6 stundir)

Hér er farið í almennan skilning á upplýsingatækni og mikilvægi hennar fyrir samfélagið svo og grunnatriði vélbúnaðar og hugbúnaðar.

Windows XP stýrikerfið (6 stundir)

Farið er í grunnaðgerðir Windows stýrikerfisins og helstu stillingar. Sérstök áhersla er lögð á þá þætti sem tengjast almennri notkun s.s. skipulag skjalasafns, vistun og afritun gagna o.s.frv.

Ritvinnsla með Word (24 stundir)

Farið er yfir helstu aðgerðir sem ritvinnsluforritið Word býður upp á s.s. afritun og vistun gagna, málsgreinaritun, formun texta, formun málsgreina, innsetningu mynda, töflur og stjórnun útprentunar.

Töflureiknirinn Excel (18 stundir)

Nemendur læra almennt um töflureikna. Einnig er farið í helstu aðgerðir töflureiknisins Excel, s.s. útlit texta og talna, töflugerð, beitingu formúla við útreikninga, gerð myndrita o.m.fl.

Gerð kynningaefnis með PowerPoint (12 stundir)

Kennt er hvernig má útbúa kynningar (glærur) með PowerPoint forritinu sem er hluti af Microsoft Office pakkanum.

Tölvupóstur og Internetið (12 stundir)

Nemendur læra að skilja og þekkja grunnatriði tölvusamskipta, þ.e. tengjast Internetinu, leita að og finna upplýsingar og senda tölvupóst.

Skráning á námskeið | prenta síðu

Nýi tölvu- og viðskiptaskólinn | Hlíðasmára 9 | 201 Kópavogur | Sími 544 4500 | Fax 544 4501 | ntv@ntv.is