Nýi tölvu- og viðskiptaskólinn
prenta síðu | Skráning á námskeið | Skráning í próf | Staðsetning skólans
tölvunám veldu: starfsnám og brautir grafík og margmiðlun sérfræði námsbrautir sérfræði námskeið bókhaldsnám Ýmis námskeið     viðskiptanám
Nýi tölvu- og viðskiptaskólinn
Nýi tölvu- og viðskiptaskólinn | Hlíðasmára 9 | 201 Kópavogur | Sími 544 4500 | Fax 544 4501 | ntv@ntv.is
@ forsíða > Starfsnám og brautir > Samstarfssamningur við EASV  

Námsbrautir NTV viðurkenndar sem inntökuskilyrði hjá háskóla í Danmörku

Einn af stærstu viðskiptaháskólum í Danmörku, Business Academy SouthWest (EASV), hefur gert samstarfssamning við NTV um að viðurkenna tveggja anna námsbrautir NTV sem inntökuskilyrði fyrir nám í skólanum.

Fjöldi íslenskra námsmanna hafa stundað nám hjá EASV en skólinn býður upp á nokkrar mismunandi námsbrautir s.s.:

  • Stjórnsýslufræði
  • Fjármálafræði
  • Markaðsfræði *
  • Tölvunarfræði *
  • Margmiðlun *
  • Tískuhönnun

* Val um kennslu á ensku eða dönsku.

Inntökuskilyrði fyrir nemendur NTV vegna inngöngu í EASV verða eftirfarandi:

  1. Tungumálakunnátta:
    1. Fyrir námsbraut sem kennd á ensku þarf að hafa lokið áfanga 303 í framhaldsskóla eða taka tilsvarandi stöðupróf frá viðurkenndum málaskóla
    2. Fyrir námsbraut sem kennd er á dönsku þarf að hafa lokið við stúdentspróf í dönsku eða taka tilsvarandi stöðupróf hjá viðurkenndum málaskóla
  2. Hafa lokið einu af eftirfarandi námi frá NTV:
    1. Sölu-, markaðs- og rekstrarnámi.
    2. Skrifstofu- og rekstrarnámi

Þeir nemendur sem hyggja á nám í margmiðlun hjá EASV þurfa auk þess að ljúka öðru af eftirfarandi námskeiðum hjá NTV:

  1. Auglýsingatækni
  2. Alvöru vefsíðugerð

Nánari upplýsingar um námið er á heimasíðu EASV: www.easv.dk

Íslendingar þurfa ekki að greiða nein námsgjöld til EASV

Skráning á námskeið | prenta síðu

Nýi tölvu- og viðskiptaskólinn | Hlíðasmára 9 | 201 Kópavogur | Sími 544 4500 | Fax 544 4501 | ntv@ntv.is