| veldu: | starfsnám og brautir | grafík og margmiđlun | sérfrćđi námsbrautir | sérfrćđi námskeiđ | bókhaldsnám | Ýmis námskeiđ |

| Afslćttir og styrkir til atvinnulausra |
| Áfangar - einingar |
| Greiđslukjör |
| Hvađ er ECDL ? |
| Námsvísir NTV (PDF) |
| Prófmiđstöđ |
| QuickTjek |
| Stefna NTV |
| Sveigjanleiki í námi |
| Um NTV |
| Póstlisti | ||
Ég heiti Auður og er 28 ára margmiðlunarnemi í Business Academy West. Eftir að ég átti dóttur mína, Emmu sem verður 2ja ára í febrúar, fór ég að skoða fyrir mér námsmöguleika bæði á Íslandi og í Danmörku. Raunin var sú að ég hafði einfaldlega ekki efni á því að stunda nám á Íslandi sem einstæð móðir á námslánunum einum. Ég var svo heppin að finna eins frábæran skóla og B.A.W. Er hér í Esbjerg. Það er kennt á ensku og kennslustundirnar eru fjölbreytilegar og skemmtilegar þar sem unnið er mikið í hópum.
Esbjerg er 90.000 manna borg ekki svo ósvipuð Reykjavík. Á sumrin er notaleg strönd til að njóta sólinarinnar á og baða sig í sjónum. Ferðamöguleikarnir eru líka margir og stutt er að fara til þýskalands. Kosturinn við Esbjerg er að það er gott að eiga börn hérna. Dagplássin eru greidd að fullu niður og þú færð öruggt pláss innan við 3 mánuði. Læknis- og tannlæknaþjónustan er að kostnaðarlausu til 18 ára aldurs. Einnig er auðvelt að fá húsnæði og húsaleigubæturnar eru hálfvirði af leigunni. Þar af leiðandi lifi ég góðu lífi sem námsmaður með dóttur mína á námslánum án nokkurs strögls.
Ég mæli eindregið með því að þú skoðir alla þá kosti sem þú hefur og sértu einstæð móðir eins og ég í leit að námi og með smá vott af ævintýraþrá…þá er ég viss um að B.A.W í Esbjerg sé rétti staðurinn fyrir þig.
Með bestu kveðju,
Auður María Pálsdóttir.