| veldu: | starfsnám og brautir | grafík og margmiđlun | sérfrćđi námsbrautir | sérfrćđi námskeiđ | bókhaldsnám | Ýmis námskeiđ |

| Afslćttir og styrkir til atvinnulausra |
| Áfangar - einingar |
| Greiđslukjör |
| Hvađ er ECDL ? |
| Námsvísir NTV (PDF) |
| Prófmiđstöđ |
| QuickTjek |
| Stefna NTV |
| Sveigjanleiki í námi |
| Um NTV |
| Póstlisti | ||
Almennar upplýsingar
Lengd námskeiðs: 185 stundir
Einingar til stúdentsprófs: 9
Staðgreiðsluverð: 299.000 (3 alþjóðleg próf og námsgögn innifalin í verðinu.)
Kjör fyrir atvinnulausa: 224.250 kr. (25% afsláttur) - geta einnig sótt um 70.000 kr. styrk hjá Vinnumálstofnun.
Inntökuskilyrði: Þeir sem hyggja á þetta nám þurfa að hafa þekkingu og skilning á Windows umhverfinu, og kunna deili helstu innviðum PC tölvunnar. Góð enskukunnátta er einnig nauðsynleg þar sem allt kennsluefni er á ensku.
Annað: Flest stéttarfélög styrkja félagsmenn til náms hjá NTV. Boðið er upp á VISA eða MasterCard lán.
Næstu námskeið:
Morgunnámskeið 1:
Námskeið hefst: 16. ágúst 2010
Námskeiði lýkur: 1. nóv. 2010
Kennslutími: 9:00 til 12:30 á mánudögum, miðvikudögum og föstudögum.
Morgunnámskeið 2:
Námskeið hefst: 3. nóv. 2010
Námskeiði lýkur: 28. jan. 2011 (Frí frá 23. des til 2. jan.)
Kennslutími: 9:00 til 12:30 á mánudögum, miðvikudögum og föstudögum.
Kvöld- og helgarnámskeið:
Námskeið hefst: 6. sept. 2010
Námskeiði lýkur: 27. nóv. 2010
Kennslutími: Kennt er á mánudags- og miðvikudagskvöldum kl. 17:30 - 21:00 og á laugardögum kl. 9 - 12:30. (frí 3 laugardaga)
Um námskeiðið:
MCITP námið er fyrir þá sem vilja starfa sem sérfræðingar við umsjón Microsoft netkerfa. Markmiðið með náminu er að nemendur læri undirstöðuatriði við rekstur og hönnun netkerfa byggðum á Windows stýrikerfinu og geti að náminu loknu tekið þau þrjú alþjóðlegu próf sem þarf til að öðlast MCITP gráðuna.
Þetta er nýjasta gráðan hjá Microsoft og er arftaki MCSA prófgráðunnar. Hér er kennt á Windows server 2008 og hentar þetta nám jafnt byrjendum, sem og þeim sem hafa góða þekkingu á Windows umhverfinu og netkerfum.
Kennslan fer fram í formi fyrirlestra, verkefnavinnu og verklegra æfinga.
Kennarinn á námskeiðinu er háskólamenntaður tölvunarfræðingur með margra ára reynslu í uppsetningu og þjónustu á netkerfum. Kennarinn er með 9 alþjóðlegar prófgráður.
Þessi námsbraut er undirbúningur fyrir eftirfarandi þrjú próf sem gefa MCITP Server Administrator gráðuna:
Smelltu á heiti námskeiðs til að fá ítarlega lýsingu á innihaldi hvers.
Prófnúmer: Heiti námskeiðs (smellið á tenglana fyrir nánari upplýsingar):
070-642 - Windows Server 2008 Network Infrastructure, Configuring
070-640 - Windows Server 2008 Active Directory, Configuring
070-646 - Windows Server 2008 Administrator
Þessi próf , sem eru innifalin í verðinu, gilda svo upp í MCITP (Enterprice Administrator gráðuna)
Námskeiðið hefst með tveggja daga kennslu á Windows 7 stýrikerfinu.
Nánari upplýsingar veitir Hermann í síma 544 4506
Samstarf við Talent Ráðningar
NTV hefur hafið samstarf við Talent Ráðningar. Ráðgjafar frá Talent Ráðningum koma og spjalla við þá nemendur sem eru í tölvu- og tækninámi í NTV. Farið er yfir hvernig er best að bera sig að við atvinnuleit, gerð ferilskrár og fl. Mikil eftirspurn er eftir tölvu- og tæknifólki í dag en Talent Ráðningar sérhæfa sig í tækni- og sérfræðistörfum. Heimasíða Talent er www.talent.is