Nýi tölvu- og viđskiptaskólinn
prenta síðu | Skráning á námskeiđ | Skráning í próf | Stađsetning skólans
tölvunám veldu: starfsnám og brautir grafík og margmiđlun sérfrćđi námsbrautir sérfrćđi námskeiđ bókhaldsnám Ýmis námskeiđ     viđskiptanám
Nýi tölvu- og viđskiptaskólinn
Nýi tölvu- og viðskiptaskólinn | Hlíðasmára 9 | 201 Kópavogur | Sími 544 4500 | Fax 544 4501 | ntv@ntv.is
@ forsíða > Sérfrćđi námsbrautir > Kerfisstjóri  

Kerfisstjóri (Tveggja anna starfsnám)

Lengd námskeiðs: 330 eða 365 kennslustundir eftir því hvort valið er MCITP helgarnámskeið eða dag- eða kvöldnámskeið á seinni önn.
Einingar til stúdentsprófs: 17
Staðgreiðsluverð: 493.000 kr.  (Allar námsbækur eru innifaldar í verðinu og þrjú alþjóðleg próf). Kerfisstjórinn samanstendur af 3 námskeiðum: Tölvuviðgerðir, MCTS & Netvork+ og MCITP Netstjórun og er gefinn 10% pakkaafsláttur.
Kjör fyrir atvinnulausa: 25% afsláttur af ofangreindum verðum - geta einnig sótt um 70.000 kr. styrk frá VMST.
Inntökuskilyrði: Nemendur þurfa að kunna góð skil á notendaumhverfi Windows stýrikerfisins og geta lesið ensku, þar sem stór hluti námsefnis er á ensku. Reynsla af rekstri tölvukerfa er ekki nauðsynleg.
Annað: Flest stéttarfélög styrkja félagsmenn til náms hjá NTV. Boðið er upp á VISA eða MasterCard lán.

Val um námskeið á fyrri önn:

.
Kvöld- og helgarnámskeið (haust 2010):

Námskeiðið hefst: Fyrri hl. (tölvuviðgerðir) 16. ág./Seinni hl. (MCTS & netw+) 13.sep.
Námskeiði lýkur: Fyrri hl. (tölvuviðgerðir) 11. sep./Seinni hl. (MCTS & netw+) 23. okt.
Kennsludagar og tími: Kennt er á þriðjudags- og fimmtudagskvöldum kl. 18 - 22 og á laugardagsmorgnum kl. 8:30 - 12:30.
Seinni hluti: MCITP Netstjórnun - mögulegt verður að velja á milli dag-, kvöld- eða helgarnámskeiða á vorönn 2011

Kvöld- og helgarnámskeið (haust 2010):

Námskeiðið hefst: Fyrri hl. (tölvuviðgerðir) 28 sep./Seinni hl. (MCTS & netw+)25.okt.
Námskeiði lýkur: Fyrri hl. (tölvuviðgerðir) 23. okt./Seinni hl. (MCTS & netw+) 4. des.
Kennsludagar og tími: Kennt er á þriðjudags- og fimmtudagskvöldum kl. 18 - 22 og á laugardagsmorgnum kl. 8:30 - 12:30.
Seinni hluti: MCITP Netstjórnun - mögulegt verður að velja á milli dag-, kvöld- eða helgarnámskeiða á vorönn 2011


Morgunnámskeið (haust 2010):

Námskeið hefst: Fyrri hl. (tölvuviðgerðir) 17. ág./Seinni hl.(MCTS & netw+) 14. sept.
Námskeiði lýkur: Fyrri hl. (tölvuviðgerðir) 10 sep./Seinni hl. (MCTS & netw+) 22. okt.
Kennsludagar og tími: Kennt er á þriðjudögum og fimmtudögum kl. 08:30 - 12:30 og á föstudögum kl 13 - 17
Seinni hluti: MCITP Netstjórnun - mögulegt að fara á MCITP morgunnámskeið sem byrjar 3. nóv. og lýkur 28. jan. 2011. (Frí frá 23. des. til 2. jan.) Kennt er á mánudögum, miðvikudögum og föstudögum kl. 8:30 til 12:30.

Morgunnámskeið (haust 2010):

Námskeið hefst: Fyrri hl. (tölvuviðgerðir) 26. okt./Seinni hl.(MCTS & netw+) 23. nóv.
Námskeiði lýkur: Fyrri hl. (tölvuviðgerðir) 19. nóv./Seinni hl. (MCTS & netw+) 13. jan. 2011 (Frí 22. des til 3. jan.)
Kennsludagar og tími: Kennt er á þriðjudögum og fimmtudögum kl. 08:30 - 12:30 og á föstudögum kl 13 - 17
Seinni hluti: MCITP Netstjórnun - mögulegt verður að velja á milli dag-, kvöld- eða helgarnámskeiða á vorönn 2011

Nákvæmar tímasetningar fyrir vorönnina 2011 liggja ekki fyrir.

Um námskeiðið:

Nám fyrir þá sem vilja hasla sér völl sem kerfisstjórar hjá fyrirtækjum og stofnunum. Nemendur öðlast víðtækan skilning á uppsetningu netkerfa, viðgerðum og bilanagreiningu á almennum vélbúnaði og uppsetningu stýrikerfa.

Námið samanstendur bæði af kennslu og verklegum æfingum. Mest er um verklegar æfingar í sérútbúinni viðgerðarstofu og sérútbúnum netkennslustofum þar sem tölvubúnaður uppfyllir ýtrustu kröfur frá Microsoft. Allar kennslugreinar eru kenndar frá grunni og er rétt að gera ráð fyrir nokkurri heimavinnu. Neðst á síðunni er að finna nánari lýsingu á einstökum námsgreinum.

Helstu námsgreinar eru:

A+ gráðurnar frá Comptia (72 stundir)

Verklegur undirbúningur fyrir A+ gráðuna. Eftir þennan hluta eiga nemendur að vera í stakk búnir til að uppfæra, bilanagreina og gera við tölvubúnað, ásamt því að setja upp viðeigandi stýrikerfi og koma tölvu í netsamband. Kennsla fer fram í nýrri og fullkominni tölvuviðgerðastofu.

Netkerfi og rekstur stýrikerfa (24 stundir)

Farið er í helstu atriði netkerfa s.s. TCP/IP protocol - Subnet - Topology´s - Hubbar, Switchar, Router, Bridge - PeerToPeer vs/ Client Server.
Auk þess verður farið í eftirfarandi atriði: Öryggi, vírusvarnir, afritataka - Réttindi (Permissions, Policies) - Hjálpartól. (Ghost (Speglun), Zip ofl.).

MCTS Windows 7 Configuration (72 stundir)

Kennd er uppsetning á Windows 7 stýrikerfinu ásamt uppsetningu á prenturum og öðrum jaðartækjum. Nemendur öðlist viðtækan skilning á netkerfum og geti leyst vandamál sem að þeim snúa. Stuðst er við viðukennt Microsoft námsefni (MOC Microsoft Official Curriclium)

Windows 2008 server (12 stundir)

Á þessum hluta námskeiðsins kynnast nemendur uppsetningum, rekstri og vandamálagreiningum á Windows 2008 Server, bæði stand-alone og sem hluti af workgroup eða domain.

MCITP Netstjórnun (seinni önn)

Þetta er nýjasta gráðan hjá Microsoft og er arftaki MCSA prófgráðunnar. Hér er kennt á Windows server 2008 og hentar þetta nám jafnt byrjendum, sem og þeim sem hafa góða þekkingu á Windows umhverfinu og netkerfum.

Kennslan fer fram í formi fyrirlestra, verkefnavinnu og verklegra æfinga. Einnig fá nemendur í hendur aðgang að fjarnámsvef hjá Microsoft (E-learning).

Við kennum Microsoft Official Courseware (MOC) námsefni sem er það námsefni sem Microsoft
hefur hannað sérstaklega fyrir þetta nám.

Þessi námsbraut er undirbúningur fyrir eftirfarandi þrjú próf sem gefa MCITP Server Administrator gráðuna:

Smelltu á heiti námskeiðs til að fá ítarlega lýsingu á innihaldi hvers.

Prófnúmer: Heiti námskeiðs (smellið á tenglana fyrir nánari upplýsingar):

070-642 - Windows Server 2008 Network Infrastructure, Configuring
070-640 - Windows Server 2008 Active Directory, Configuring
070-646 - Windows Server 2008 Administrator


Þessi próf gilda svo upp í MCITP (Enterprice Administrator gráðuna)

Nánari upplýsingar veitir Hermann í síma 544 4506

 

Samstarf við Talent Ráðningar

NTV hefur hafið samstarf við Talent Ráðningar. Ráðgjafar frá Talent Ráðningum koma og spjalla við þá nemendur sem eru í tölvu- og tækninámi í NTV. Farið er yfir hvernig er best að bera sig að við atvinnuleit, gerð ferilskrár og fl. Mikil eftirspurn er eftir tölvu- og tæknifólki í dag en Talent Ráðningar sérhæfa sig í tækni- og sérfræðistörfum. Heimasíða Talent er www.talent.is

Skráning á námskeið | prenta síðu

Nýi tölvu- og viðskiptaskólinn | Hlíðasmára 9 | 201 Kópavogur | Sími 544 4500 | Fax 544 4501 | ntv@ntv.is