Afslættir og styrkir til atvinnulausra
25% afsláttur af almennum námskeiðum hjá NTV
NTV veitir atvinnulausum 25% afslátt af öllum námskeiðum sem eru í boði hjá skólanum.
Jafnframt niðurgreiðir Vinnumálastofnun sum námskeið um allt að 50% af nettó námskeiðsverði samkvæmt nánari reglum þar um þó að hámarki 70.000 kr. Best er að skrá sig fyrst á námskeið hjá okkur og fá staðfestingu og stundaskrá og fara með þau gögn til ráðgjafa hjá Vinnumálastofnun og sækja um námsstyrk hjá þeim. Eftir að Vinnumálastofnun staðfestir styrkveitinguna til okkar þá sendum við reikning fyrir þeim hluta námskeiðsins beint til þeirra.
Skráning á námskeið | prenta síðu