Nýi tölvu- og viđskiptaskólinn
prenta síðu | Skráning á námskeiđ | Skráning í próf | Stađsetning skólans
tölvunám veldu: starfsnám og brautir grafík og margmiđlun sérfrćđi námsbrautir sérfrćđi námskeiđ bókhaldsnám Ýmis námskeiđ     viđskiptanám
Nýi tölvu- og viđskiptaskólinn
Nýi tölvu- og viðskiptaskólinn | Hlíðasmára 9 | 201 Kópavogur | Sími 544 4500 | Fax 544 4501 | ntv@ntv.is
@ forsíða > Starfsnám og brautir > Bókaranám framhald  

Bókaranám framhald

Almennar upplýsingar

Lengd námskeiðs: 168 stundir
Einingar til stúdentsprófs: 9
Staðgreiðsluverð: 198.000 kr.

Kjör fyrir atvinnulausa: 148.500 (25% afsláttur) – geta einnig sótt um 70.000 kr. styrk hjá VMST.

Inntökuskilyrði: Nauðsynlegt er að nemendur hafi grunnþekkingu á bókahaldi og Excel töflureikni.

Annað:  Flest stéttarfélög styrkja félagsmenn til náms hjá NTV.  Boðið er upp á VISA eða MasterCard lán. 

Næstu námskeið:

Morgunnámskeið

Námskeið hefst: 14. sept.
Námskeiði lýkur: 16. des
Kennsludagar og tími: Kennt er á þriðjudögum og fimmtudögum kl. 08:30 – 12:30.

Kvöldnámskeið

Námskeið hefst: 13. sept.
Námskeiði lýkur: 15. des.
Kennsludagar og tími: Kennt er á mánudags- og miðvikudagskvöldum kl. 18– 22

Um námskeiðið:

Námskeiðið er ekki eiginlegt bókhaldsnám þar sem gert er ráð fyrir því að nemendur hafi þekkingu á almennu bókhaldi. Í námskeiðinu er lögð áhersla á að styrkja nemendur í sjálfstæðum vinnubrögðum og auka færni þeirra við færslu og uppgjör bókhalds. Að loknu námskeiðinu eiga nemendur að vera færir að sjá um viðskiptamannakerfi, launakerfi og vera færir um að framkvæma einföld uppgjör á bókhaldi ásamt öllum þeim afstemmingum og lokafærslum sem nauðsynlegar eru. Að námi loknu verða nemendur mun verðmætari starfsmenn í fyrirtækjum og geta hagnýtt upplýsingar úr bókhaldi á hagnýtan hátt.

Námið byggir á mikilli verkefnavinnu og þess gætt að verkefni sem nemendur leysa séu hagnýt. Gera má ráð fyrir nokkurri heimavinnu. Námskeiðið er algjörlega óháð reynslu nemenda á mismunandi bókhaldskerfum þar sem námið er að mestu leyti unnið í Excel. Í takt við það munu nemendur ennfremur styrkja þekkingu sýna á hagnýtri notkun Excel.

Kennarinn er með meistaragráðu í viðskiptafræði.

Skipting og lengd námsgreina

  • Excel (24 stundir)
  • Sölukerfi (18 stundir)
  • Laun (30 stundir)
  • Lánadrottnar og skuldunautar (12 stundir)
  • Fyrningar (18 stundir)
  • Virðisaukaskattur (6 stundir)
  • Lán (18 stundir)
  • Gerð ársreikninga (24 stundir)
  • Lokaverkefni (18 stundir)


Excel

Gert er ráð fyrir að nemendur hafi þekkingu á Excel.  Fjallað er einkum um aðgerðir og föll sem nýtast í verkefnum sem farið verður yfir í náminu.  Bæði gagnleg föll í Excel en einnig hagnýt atriði og vinnubrögð sem nýtast við notkun á Excel.

Sölukerfi

Farið er m.a. í uppsetningu og skráningu viðskiptavina og vara. Móttöku og skráningu pantana, gerð reikninga og kreditreikninga auk margvíslega skýrslugerð.

Launakerfi

Byrjað er á því að skoða kjarasamninga almennt ásamt reglum um reiknað endurgjald. Fjallað er um mismunandi launaliði og hlunnindi ásamt frádráttarliðum. Þá eru reiknuð laun og launaseðlar gerðir í Excel. Loks er farið í launakerfi sem hluta af bókhaldskerfi og farið í gegnum allt ferlið þar, allt frá því að stofna launþega og yfir í að keyra út skilagreinar. Fjallað er um skattkort, opinber gjöld, lífeyrissjóði og mismunandi tegundir af skilagreinum og launaframtal.

Lánadrottnar og viðskiptamenn

Farið er í lista yfir lánadrottna og viðskiptamenn og fjallað um hvernig þessar upplýsingar eru birtar í ársreikningum.

Fyrningar

Fjallað er um fyrningar fyrirtæka og hvaða reglur fjalla um þær. Fjallað er um mismandi reglur fyrninga samkvæmt skattareglum og venjum í reikningshaldi. Nemendur fylla út fyrningatöflur, bæði skattalegar og reikningshaldslegar, og gera viðeigandi færslur sem hluta af uppgjöri.

Virðisaukaskattur

Fjallað er um virðisaukaskatt og virðisaukaskattsafstemmingar.  Nemendur gera virðisaukaskattsafstemmingar í Excel.

Lán

Fjallað er um lán fyrirtækja ásamt því að farið er ítarlega í uppreikning á lánum miðað við verðbólgu og gengi. Fjallað um mun á langtíma og skammtímaskuldum og næsta árs afborganir reiknaðar og færðar. Nemendur reikna lánatöflur og færa nauðsynlegar færslur sem hluta af uppgjöri, s.s. uppreikning á lánum, næsta árs afborganir og áfallna vexti.

Gerð ársreikninga

Farið er í lykilafstemmingar sem óskað er eftir við ársuppgjör. Nemendur læra hvernig má flýta fyrir endurskoðunarvinnu og gera þann feril bæði styttri og ódýrari. Ennfremur læra nemendur að ganga frá uppgjöri sjálfir með öllum þeim færslum sem þarf að gera. Fjallað er um uppbyggingu ársreiknings – áritanir, rekstrar- og efnahagsreikning, sjóðstreymi, skýringar og sundurliðanir. Þá er ennfremur reiknaðar algengar kennitölur sem nýtast úr upplýsingum í ársreikningum. Nemendur búa til ársreikning frá grunni .

Lokaverkefni

Nemendur gera ítarlegt einstaklings lokaverkefni þar sem þeir þurfa framkvæma uppgjör á fyrirtæki. Í lokaverkefninu koma fyrir öll atriði sem fjallað hefur verið um á námskeiðinu.

Skráning á námskeið | prenta síðu

Nýi tölvu- og viðskiptaskólinn | Hlíðasmára 9 | 201 Kópavogur | Sími 544 4500 | Fax 544 4501 | ntv@ntv.is