Nýi tölvu- og viðskiptaskólinn
prenta síðu | Skráning á námskeið | Skráning í próf | Staðsetning skólans
tölvunám veldu: starfsnám og brautir grafík og margmiðlun sérfræði námsbrautir sérfræði námskeið bókhaldsnám Ýmis námskeið     viðskiptanám
Nýi tölvu- og viðskiptaskólinn
Nýi tölvu- og viðskiptaskólinn | Hlíðasmára 9 | 201 Kópavogur | Sími 544 4500 | Fax 544 4501 | ntv@ntv.is
@ forsíða > Starfsnám og brautir > Frumkvöðla og rekstrarnám  

Frumkvöðla og rekstrarnám

- Frá viðskiptahugmynd að veruleika - (168 stundir)

Almennar upplýsingar

Lengd námskeiðs: 168 stundir
Einingar til stúdentsprófs: 9

Staðgreiðsluverð: 198.000 kr.

Kjör fyrir atvinnulausa: 148.500 kr. (25% afsláttur) – geta einnig sótt um 70.000 kr. styrk hjá VMST

Inntökuskilyrði: Nauðsynlegt er að nemendur hafi grunnþekkingu á Excel töflureikningi.

Annað: Flest stéttarfélög styrkja félagsmenn til náms hjá NTV.  Boðið er upp á VISA eða MasterCard lán. 

Næstu námskeið:

Kvöldnámskeið

Námskeiðið hefst:  14. sept.
Námskeiði lýkur:  16. des.
Kennsludagar og tími:  Kennt er á þriðjudags- og fimmtudagskvöldum kl. 18 - 22.

Morgunnámskeið

Námskeið hefst:  13. sept.
Námskeiði lýkur:  15. des.
Kennsludagar og tími:  Kennt er á mánudögum og miðvikudögum kl. 8:30 - 12:30.
 

Um námskeiðið:

Frumkvöðla og rekstrarnám er sérstaklega hagnýtt og hnitmiðað nám, bæði fyrir þá sem vilja styrkja eigin rekstur og þá sem hafa í hyggju að stofna til eigin reksturs með því að finna hugmyndum sínum eða hugmyndum annara frjóan farveg.  Námið miðar að því að kenna gerð viðskiptaáætlana og hvernig hægt er að greina á milli arðbærra og óarðbærra hugmynda, hvenær borgar sig að fara af stað og hvenær borgar sig að sitja heima.
 

Í náminu er mikilli athygli beint að mikilvægi þess að gera raunhæfar áætlanir og hvernig hægt er að styrkja þær með mismunandi rannsóknum og greiningu á markaðnum.

Nemendur fá að námi loknu, með þeim verkfærum sem honum eru fengin á námstímanum, að geta sýnt fram á, með tilbúinni viðskiptaáætlun, áætlaða arðsemi þess að ráðast í framkvæmd hugmyndarinnar. Viðskiptaáætlunina má svo nota til að sannfæra þá fjóra sem skipta mestu máli, höfundinn, bankann, fjárfesta og makann.

Hér að neðan er að finna nánari lýsingu á einstökum námsgreinum:

Skipting og lengd námsgreina

  • Frumkvöðlar og framtíðarsýn - 6 stundir
  • Stofnun fyrirtækja - 6 stundir
  • Hagnýt markaðsfræði - 24 stundir
  • Markaðssetning á netinu - 24 stundir
  • Excel við áætlanagerð - 24 stundir
  • Fjármálastjórnun og framlegð - 24 stundir
  • Hagnýtur bókhaldsskilningur - 12 stundir
  • Gerð viðskiptaáætlunar - 48 stundir

Lýsingar á námsgreinum:

Frumkvöðlar og framtíðarsýn (6)

Hvert er hlutskipti frumkvöðla og hvað einkennir þennan hóp annað en að sjá möguleika og tækifæri í hinu augljósa sem öllum öðrum yfirsést? Er hægt að beisla þá orku sem þeir búa yfir og koma henni í umbúðir sem t.d. fjárfestar skilja. Oft er það einkennandi fyrir frumkvöðla að vera röreygðir á eigin hugmyndir og skynja markaðinn út frá rauntíma og á eigin forsendum.
Í þessum áfanga verður nemendum kennd NLP (Neuro-Linguistic Programming) aðferðafræðin til að ferðast inn í framtíðina og öðlast með því yfirsýn yfir ferlið í heild sinni, frá hugmynd að fullbúinni vöru. Ferðalagið verður skrásett og svo endurtekið í lok námskeiðsins til samanburðar.

Stofnun fyrirtækja (6)

Fjallað er um mismunandi rekstrarform fyrirtækja, svo sem einstaklingsrekstur, sameignarfélög og hlutafélög. Hvað aðgreinir þessi félög og hvaða lög og reglur gilda um þau. Nemendur fá þjálfun í að stofna sitt eigið einkahlutafélag með öllum tilheyrandi fylgiskjölum og greinargerðum.

Hagnýt markaðsfræði (24)

Með réttum markaðsgreiningum er hægt að skipuleggja flestar orustur áður en þær eru háðar og láta þannig keppinautana ekki koma sér að óvörum. Nauðsynlegt er að rannsaka innra og ytra umhverfi áður en farið er af stað. Það leiðir bæði í ljós hætturnar sem bera að varast og tækifærin sem bera að nýta. 
SVÓT greining - Byrjað er á að kenna nemendum svokallaða SVÓT greiningu, sem er innri greining fyrir fyrirtækið eða hugmyndina. Það er greining á Styrkleikum, Veikleikum, Ógnunum og Tækifærum. 
Fimm afla greining  - Næst er nemendum kennd ytri greining eða fimm afla greining á markaðnum. Sú rannsókn varpar ljósi á helstu áhrifavalda  á markaðnum s.s. keppinauta, neytendur, birgja og hvaða þröskulda nýr keppinautur þarf að yfirstíga áður en hann kemst inn á markaðinn.
STP og P´in fjögur   -  Farið er í gegnum STP (e. segmentation – targeting – positioning) og hvernig það tengist við hin fjórum P´um í markaðsfræðinni (e. product – price – promotion – place).
Með tilliti til fyrri niðurstaðna þarf að finna réttu markhópana og einkenni þeirra.  Er markhópurinn fólk, fyrirtæki eða stofnanir. Hvaða vandamál á varan að leysa. Hvaða þætti á að einblína á við markaðssetningu vörunnar, verð, gæði, magn, ímynd og hvernig tengist það markhópnum.
Markaðssamskipti  -  Þegar búið er að greina markhópinn og ákveða hvað á að bjóða honum, á hvaða forsendum, á hvaða verði, í hvernig umbúðum og í hvaða magni, þarf að ákveða hvar, hvenær og hvernig á að nálgast hann.
Markaðssamskipti ganga út á að koma réttum skilaboðum til réttra hópa, nota til þess réttar boðleiðir og greiða fyrir það rétt verð.

Excel við áætlanagerð (24)

Excel er öflugasta verkfærið sem völ er á við áætlanagerð.  Kennd verður uppsetning áætlanna frá grunni með þeim formúlum og föllum sem til þarf til að gera nauðsynlegar fjárhags- og kostnaðaráætlanir.  Einnig  fá nemendur til afnotar tilbúin rekstrar- og hugmyndalíkön.
Gert er ráð fyrir því að nemendur hafi undirstöðuþekkingu í Excel töflureikninum. Ef hana skortir getur nemandi fengið 50% afslátt af stöku Excelnámskeiði hjá NTV.

Markaðssetning á netinu (24)

Í þessum hluta er tekið, á hagnýtan hátt, á því hvernig fyrirtæki geta náð góðum árangri í markaðsstarfi sínu á netinu. Skoðuð er breyting á heðgun viðskiptavina, ásamt því að leita upp helstu sóknarfærin sem er að finna á netinu. Svarað er helstu spurningum um bestu nýtingu á vefborðum og hvernig hægt er að ná góðum árangri með leitarvélum ásamt því að hvernig hægt er að nota samfélagsmiðlana til að ná auknum árangri. Nýting á vefgreiningartólum er ústkýrð, notkun á tölvupóstum er skoðuð og og unnin eru verkefni í tengslum við yfirferð námskeiðsins.
Stuðst er við bókina "Markaðssetning á netinu" eftir þá Guðmund Arnar Guðmundsson og Kristján Már hauksson og er hún innifalin í verði námskeiðsins.

Fjármálastjórnun og framlegð (24)

Í þessum hluta námsins er kenndur er arðsemisútreikningur og aðferðir til að ná fram hámörkun hagnaðar við mismunandi skilyrði. Fjallað er um framleiðslu, framboð, eftirspurn og arðsemi ásamt jafnvægisgreiningu og annara útreikninga með tilliti til ýmissa kostnaðarþátta.
Skoðaðar verða forsendur ávöxtunarkrafna og kynntar aðferðir við að meta núvirði, framvirði og afskriftir mismunandi fjárfestinga.
Farið er ítarlega yfir áætlunargerð fyrirtækja, greiðslu- og rekstraráætlanir til að geta framreiknað áætlaðan efnahag í árslok. Mikil áhersla er lögð á verklegar æfingar.

Hagnýtur bókhaldsskilningur (12)

Í þessum hluta námskeisins er nemendum kennt að lesa út úr bókhaldsgögnum þær upplýsingar sem þarf, til að átta sig á hver staða fyrirtækja er. Lykilatriði eru útskýrð og tengd við þá aðferðarfræði sem notuð er til að meta styrk- og veikleika fyrirtækja. Eftir þennan hluta á nemandi m.a. að geta lesið úr ársreikningum fyrirtækja þær upplýsingar sem skipta meginmáli.

Gerð viðskiptaáætlunnar (48)

Viðskiptaáætlunin er afrakstur allra annara námsgreina í þessu námi. Þar munu nemendur sýna fram á að þeir geri sér grein fyrir markaðsmálum, stofnkostnaði, rekstrarfjárþörf auk fjölda annara þátta, og geti með þekkingu sinni ásamt þeim verkfærum sem þeim eru færð á námstímanum, áætlað arðsemi þess að ráðast í framkvæmd hugmynda sinna. 
Viðskiptaáætlun er greinargerð þar sem öllum upplýsingum er komið skipulega á einn stað. Þannig er auðveldlega hægt að gera sér grein fyrir hvaða leiðir er vænlegar og hvað þarf til að gera viðskiptahugmyndir að veruleika.

Náminu lýkur á kynningu áætlanna.
 

Skráning á námskeið | prenta síðu

Nýi tölvu- og viðskiptaskólinn | Hlíðasmára 9 | 201 Kópavogur | Sími 544 4500 | Fax 544 4501 | ntv@ntv.is