| veldu: | starfsnám og brautir | grafík og margmiđlun | sérfrćđi námsbrautir | sérfrćđi námskeiđ | bókhaldsnám | Ýmis námskeiđ |

| Afslćttir og styrkir til atvinnulausra |
| Áfangar - einingar |
| Greiđslukjör |
| Hvađ er ECDL ? |
| Námsvísir NTV (PDF) |
| Prófmiđstöđ |
| QuickTjek |
| Stefna NTV |
| Sveigjanleiki í námi |
| Um NTV |
| Póstlisti | ||
Almennar upplýsingar
Staðgreiðsluverð: 219.000
Inntökuskilyrði: Þeir sem hyggja á þetta nám þurfa að hafa þekkingu og skilning á Windows umhverfinu, og kunna deili helstu innviðum PC tölvunnar. Góð enskukunnátta er einnig nauðsynleg þar sem allt kennsluefni er á ensku.
Um námskeiðið:
MCITP námið er fyrir þá sem vilja starfa sem sérfræðingar við umsjón Microsoft netkerfa. Markmiðið með náminu er að nemendur læri undirstöðuatriði við rekstur og hönnun netkerfa byggðum á Windows stýrikerfinu og geti að náminu loknu tekið þau þrjú alþjóðlegu próf sem þarf til að öðlast MCITP gráðuna.
Þetta er nýjasta gráðan hjá Microsoft og er arftaki MCSA prófgráðunnar. Hér er kennt á Windows server 2008 og hentar þetta nám jafnt byrjendum, sem og þeim sem hafa góða þekkingu á Windows umhverfinu og netkerfum.
Þú ert með aðgang að eftirfarandi tækjum og tólum allan sólahringinn:
Microsoft E-Learning hugbúnaði frá Microsoft Learning
Æfingarprófum frá Measureup
Tips, Tricks og tenglum frá Microworld
Skráningu og kaup á vottunarprófum frá Prometric
Beintengingu við viðurkennda kennara (MCT) hjá Global Mentoring Solutions
Kennarinn á námskeiðinu er með MCT vottun og þú hefur samband við hann í gegnum samskiptaforrit sem er svipað og MSN messenger
Þessi námsbraut er undirbúningur fyrir eftirfarandi þrjú próf sem gefa MCITP Server Administrator gráðuna:
Smelltu á heiti námskeiðs til að fá ítarlega lýsingu á innihaldi hvers.
Prófnúmer: Heiti námskeiðs (smellið á tenglana fyrir nánari upplýsingar):
070-642 - Windows Server 2008 Network Infrastructure, Configuring
070-640 - Windows Server 2008 Active Directory, Configuring
070-646 - Windows Server 2008 Administrator
Þessi próf gilda svo upp í MCITP (Enterprice Administrator gráðuna)
Nánari upplýsingar veitir Guðný María í síma 544 4506