Lengd námskeiðs
Tveggja anna nám, 432 kennslustd. kennslustundir
Verð
396.000 kr.
Almennt um námið
Markmiðið með námi á Skrifstofu- og bókhaldsbraut er að auka enn frekar samkeppnishæfni nemenda og búa þá vel undir krefjandi störf á vinnumarkaðinum. Hér eru tekin saman tvö námskeið sem styðja mjög vel hvort við annað: Skrifstofuskólinn og Bókaranám framhald. Auk þess að undirbúa nemendur til starfa við almenn skrifstofustörf er lögð áhersla á að gera nemendur færari í bókhaldsstörfum, skapa ákveðna sérþekkingu og færa þá nær sjálfum rekstrinum. Í námi sem spannar fleiri annir, þá eru alltaf hefðbundin skólafrí, yfir sumartímann, yfir jól og áramót og yfir páskatímabilið.
Fyrri önn
Fyrri hluti námsins er haldið í samvinnu við Mími-símenntun og er kennt eftir vottaðri námskrá Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins (FA).
Um er að ræða almennt skrifstofu- og tölvunám sem hentar öllum sem annað hvort eru á leið út á vinnumarkaðinn, oft eftir nokkurra ára hlé, eða vilja styrkja stöðu sína í starfi. Í náminu er lögð rík áhersla á að styrkja einstaklinginn og gera hann hæfari til að takast á við krefjandi störf á vinnumarkaðinum.
Meðal kennslugreina á fyrri önn eru bókhald, tölvubókhald, verslunarreikningur, Word-ritvinnsla, Excel-töflureiknir, gerð kynningarefnis, streitustjórnun og margt fleira. Námið samanstendur bæði af kennslu og verklegum æfingum og eru próf í helstu greinum. Allar kennslugreinar eru kenndar frá grunni og rétt er að gera ráð fyrir nokkurri heimavinnu. Fyrri önninni lýkur með lokaverkefni sem samþættir flestar námsgreinar og kennir nemendum að nýta flest það sem tekið er fyrir á námskeiðinu í einu verkefni.
Seinni önn
Á seinni önninni er lögð áhersla á að styrkja nemendur í sjálfstæðum vinnubrögðum og auka færni þeirra við færslu og uppgjör bókhalds. Að loknu námskeiðinu eiga nemendur að vera færir um að sjá um viðskiptamannakerfi og launakerfi og geta framkvæmt einföld uppgjör á bókhaldi ásamt öllum þeim afstemmingum og lokafærslum sem nauðsynlegar eru. Að námi loknu verða nemendur mun verðmætari starfsmenn í fyrirtækjum og færir um að nota upplýsingar úr bókhaldi á hagnýtan hátt.
Námið samanstendur af kennslu og verklegum æfingum. Verkefnavinna nemenda er mikil og gert ráð fyrir nokkurri heimavinnu. Þess er gætt að verkefnin séu hagnýt. Námið er óháð reynslu nemenda af mismunandi bókhaldskerfum þar sem að mestu leyti er unnið í Excel-töflureikni og munu nemendur við það styrkja þekkingu sýna á hagnýtri notkun Excel.
Allir námsþættir eru kenndir frá grunni og lýkur flestum þeirra með prófi en auk þess er gefin einkunn fyrir lokaverkefni og mætingar.
Vönduð námsgögn eru innifalin í verði.
Við viljum vekja athygli á, að ekki er um sömu vikudaga að ræða í námi á fyrri og seinni önn. Nám í Skrifstofuskólanum fer fram 3var í viku en 2var í viku eftir áramót þegar námskeiðið Bókaranám framhald hefst.
Inntökuskilyrði
Námið er ætlað fólki sem er 20 ára eða eldra og hefur stutta formlega skólagöngu að baki.
Nemendur sem ætla áfram í Bókaranám framhald þurfa að ná 7,0 í meðaleinkunn í þeim prófum sem tilheyra þessari námsbraut.
Fjarnám í boði
NTV skólinn býður upp á vandað fjarnám með góðum stuðningi. Nemendur fá allt ítarlegt námsefni, fyrirlestra, verkefni og úrlausnir í gegnum nemendaumhverfi skólans sem er aðgengilegt hvar og hvenær sem er á netinu. Fjarnemendur hafa aðgengi að leiðbeinanda í gegnum nemendasvæðið með allar fyrirspurnir. Samskipti kennara/umsjónarmanns við fjarnemendur fara fram rafrænt í gegnum Microsoft Teams umhverfið. Í upphafi fá fjarnemendur námsdagskrá sem tilgreinir og tímasetur alla námsyfirferð, verkefnaskil, prófadaga og annað sem við á. Öll próf eru framkvæmd í gegnum nemendaumhverfi NTV á netinu.
Öllum nemendum í fjarnámi býðst að koma í valda tíma í staðnáminu ef þeir óska eftir því svo fremi sem það eru laus sæti.
ATH: Mikilvæg ábending fyrir fjarnemendur sem vinna í Mac umhverfi. Námsefni skólans miðast við PC umhverfi í allri Excel kennslu. Það er munur á einstökum aðgerðum á milli Mac og PC, þó hann fari minnkandi. Sá munur liggur aðallega í flýtiaðgerðum á lyklaborðinu. Nemendur í Mac umhverfi verða sjálfir að setja sig inn í þær aðgerðir. Það eru í boði fjöldinn allur af hjálparsíðum á netinu sem útskýra þetta sérstaklega.
Greiðslumöguleikar
Sjá nánari upplýsingar hér: http://www.ntv.is/is/um-ntv/greidsla-namskeidsgjalda